David Moyes, knattspyrnustjóri Everton, segir að aukin áhersla á föst leikatriði sé farin að gera fótbolta líkari glímu og kallar eftir því að dómarar taki fastar á svokölluðum „skítabrögðum“. Everton fékk gagnrýni eftir 1-0 tap gegn Manchester United þar sem leikmenn liðsins þröngvuðu sér inn í markteiginn og settu mikla pressu á markvörðinn Senne Lammens. Lesa meira