Brim vill gera breytingar á verðmiðanum í fyrir­huguðum risa­kaupum á Lýsi

Fyrirhuguð kaup Brims á öllu hlutafé Lýsis fyrir samtals þrjátíu milljarða, sem tilkynnt var um síðasta haust, eru ekki enn komin á borð stjórnar en forstjóri sjávarútvegsfyrirtækisins segir að „félögin séu ekki alveg sammála um verðið“ í viðskiptunum. Hlutabréfaverð Brims hefur hækkað um nærri fimmtíu prósent á síðustu mánuðum samhliða því að afurðaverð hefur verið í hæstu hæðum, sem skilaði sér í feykilega sterku uppgjöri undir lok ársins, en forstjórinn telur samt gengi krónunnar vera „alltof sterkt“ um þessar mundir.