Lögmaður verktakans sem var látinn fara frá framkvæmdum við Ölduselsskóla fyrirvaralaust, segir að engar viðhlítandi skýringar hafi fengist frá Reykjavíkurborg á því hvers vegna samningi var slitið. Verktakinn hafði nýverið ráðið inn tíu nýja starfsmenn vegna verkefnisins, sem nú hafa misst vinnuna. Reykjavíkurborg sleit samstarfi við verktaka í Ölduselsskóla á miðvikudag, sem hætti samdægurs og fjarlægði allan öryggisbúnað. Skólinn var lokaður í gær þar sem starfsfólk treysti sér ekki til að vinna við þær aðstæður sem sköpuðust og fimm hundruð börn sátu heima. Verktakinn, HH Hús, íhugar að leita réttar síns og krefjast skaðabóta. Elimar Hauksson, lögmaður HH Húss, segist engar viðhlítandi skýringar hafa fengið á verkslitunum. „Við höfum ekki fengið skýringar eða svör eða rökstuðning eða neitt slíkt. Ég geri ráð fyrir að það sé eitthvað í vinnslu hjá borginni en nei, við erum eitt spurningarmerki enn þá.“ Á hvaða fjárhæðum hleypur mögulegt tjón vegna þessa atviks? „Að minnsta kosti tugi milljóna, augljóslega. Það var til dæmis búið að bæta tíu starfsmönnum við mjög nýlega til þess að reyna að flýta verkinu og búið að stofna til launþegasambands við tíu manns. Tíu manns sem hann var búið að segja upp og þarf að greiða uppsagnarfrest en engar rekstrartekjur eru á móti þeim launum sem þarf að greiða í uppsagnarfrest. Það er auðvitað afleitt og það heitir tjón.“ Hafnar ásökunum um að ófaglærðir menn hafi verið að sinna verkefnum Í tilkynningu á vef Reykjavíkurborgar sagði að uppsögn á samningi verktakans hafi verið vegna þess að frágangur hafi hvorki uppfyllt gæðakröfur né hæfniviðmið. Fulltrúi borgarinnar sagði í fréttum RÚV í gær að dæmi hafi verið um að menn hafi sinnt störfum sem þeir hefðu ekki menntun til. Voru dæmi um það að menn voru að sinna verkefnum sem þeir höfðu ekki menntun til? „Nei, og ég veit ekki hvaðan þetta kemur. Staðan er auðvitað bara þannig að það eru meistarar yfir verkum, hvort sem það er pípulagningarmeistari eða rafvirkjameistari eða húsasmeðameistari og ýmist eru þá menn með sveinspróf eða sveinar eða ófaglærðir sem vinna undir þessum mönnum. Það er bara ekkert öðruvísi hjá þessu félagi heldur en öðrum verktökum. Því er bara algjörlega hafnað að það er eitthvað ófaglært fólk að ganga í einhver verk sem það átti ekki að vinna. Það er bara, því er bara algjörlega hafnað.“