Valur er bikarmeistari kvenna í handbolta eftir sigur á Haukum, sem voru ríkjandi bikarmeistarar, 23:19, í bikarúrslitum á Ásvöllum í dag. Valur hefur nú unnið bikarinn tíu sinnum en aðeins Fram er með fleiri bikartitla.