Hákon Rafn Valdimarsson stóð í marki Brentford í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag, í fyrsta sinn í vetur, og fagnaði 4-3 sigri gegn Burnley. Hann gat lítið gert við mistökum samherja síns sem setti boltann tvisvar í eigið mark. Everton vann frábæran útisigur gegn Newcastle.