Framboðslisti Framsóknar fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor var samþykktur í dag í Víkingsheimilinu í Safamýri á tvöföldu kjördæmaþingi Kjördæmasambands Framsóknar í Reykjavík. Fjögur efstu sæti flokksins voru kynnt í byrjun febrúar. Einar Þorsteinsson, borgarfulltrúi og fyrrverandi borgarstjóri, verður áfram oddviti flokksins. Magnea Gná Jóhannsdóttir borgarfulltrúi er í öðru sæti, Þorvaldur Daníelsson, framkvæmdastjóri Hjólakrafts í þriðja sæti og Halldór Bachman, kynningastjóri Almenna lífeyrissjóðsins í fjórða. „Ég er þakklátur fyrir það traust sem mér er sýnt með því að fá að leiða listann og fagna nýju fólki sem ætlar að taka þátt í baráttunni. Ég hlakka til þess að hefja kröftuga kosningabaráttu og svara kalli kjósenda um róttækar breytingar á stefnu Reykjavíkurborgar,” er haft eftir Einari í tilkynningu. Listi Framsóknarflokksins í heild sinni er eftirfarandi: Einar Þorsteinsson, borgarfulltrúi Magnea Gná Jóhannsdóttir, borgarfulltrúi Þorvaldur Daníelsson, varaborgarfulltrúi og framkvæmdastjóri Hjólakrafts Halldór Bachmann, kynningarstjóri Andrea Edda Guðlaugsdóttir, hagfræðinemi og stúdentaráðsliði Þórdís Jóna Jakobsdóttir, fíkniráðgjafi Ína Holoyad, úkraínskumælandi brúarsmiður hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Guðmundur Ingi Þorvaldsson, leikari Ásrún Kristjánsdóttir, myndlistarmaður og hönnuður Skúli Bragi Geirdal, sviðsstjóri Kristjana Þórarinsdóttir, sálfræðingur Dagbjört Höskuldsdóttir, formaður Sambands eldri Framsóknarmanna og fyrrum kaupmaður Jón Finnbogason, ráðgjafi Þórdís Arna Bjarkarsdóttir, læknir í sérnámsgrunni Fanný Gunnarsdóttir, náms- og starfsráðgjafi og kennari Haraldur Þorvarðarson, kennari og handboltaþjálfari Ragnhildur Helga Ragnarsdóttir, tæknistjóri Hörður Ragnarsson, hugbúnaðarsérfræðingur Sæþór Már Hinriksson, tónlistarmaður og háskólanemi Ásta Björg Björgvinsdóttir, kennari og tónlistarkona Gísli J Jónatansson, fyrrverandi kaupfélagsstjóri Dröfn Skorradóttir, móttökuritari Ágúst Guðjónsson, lögfræðingur Hafsteinn Gunnarsson, byggingafræðingur og forstöðumaður Björg Ósk Gunnarsdóttir, lögfræðingur Björn Ívar Björnsson, fjármálastjóri og hagfræðingur Gyða Björg Olgeirsdóttir, aðstoðarmaður framkvæmdastjóra Arnar Már Davíðsson, framleiðandi Linda Björk Hávarðardóttir, aðstoðarforstöðukona á frístundaheimili Arnþór Árni Logason, tölvunarfræðingur Bragi Ingólfsson, efnafræðingur Steinþór Ólafur Guðrúnarson, atvinnubílstjóri Olga Hrönn Olgeirsdóttir, deildarstjóri í grunnskóla Breki Halldórsson Bachmann, námsmaður og stuðningsfulltrúi í grunnskóla Inga Þyrí Kjartansdóttir, formaður eldri borgara í Fossvogi Ólafur Ólafsson, sérfræðingur Jóhann Karl Sigurðsson, eldri borgari Ívar Orri Aronsson, íþróttastjóri Milla Ósk Magnúsdóttir, kvikmynda- og sjónvarpsþáttaframleiðandi Lárus Sigurður Lárusson, söngvari og lögmaður Hulda Finnlaugsdóttir, fyrrv. sérkennari Aðalsteinn Haukur Sverrisson, framkvæmdastjóri og fráfarandi borgarfulltrúi Árelía Eydís Guðmundsdóttir, dósent við HÍ og fráfarandi borgarfulltrúi Níels Árni Lund, fyrrv. skrifstofustjóri Hjálmar Árnason, fyrrv. þingmaður og skólameistari Sigrún Magnúsdóttir, fyrrv. borgarfulltrúi og ráðherra