Valur varð í dag bikarmeistari kvenna í handbolta með sigri á Haukum. Haukar voru með fjögurra marka forskot þegar seinni hálfleikur var hálfnaður en með glæsilegum endaspretti tókst Val að snúa taflinu við.