Tveir leikir voru spilaðir í neðri hluta úrvalsdeildar kvenna í körfubolta í kvöld. Tindastóll vann Stjörnuna örugglega, 90-66 en þrjár framlengingar þurfti til þegar Hamar/Þór vann Ármann í æsispennandi botnslag. Jadakiss Nashi skoraði 52 stig fyrir Hamar/Þór í dag.RÚV / Mummi Lú Ármann komst tveimur stigum yfir þegar tvær sekúndur voru eftir af venjulegum leiktíma en Jadakiss Nashi jafnaði í 81-81 og tryggði Hamri/Þór framlengingu. Jadakiss átti stórleik og skoraði 52 stig. 89-89 var staðan að henni lokinni og 99-99 eftir aðra framlengingu. Í þeirri þriðju tókst Hamri/Þór að klára leikinn og vann 107-104 . Ármann vermir botnsæti deildarinnar með 6 stig, tveimur stigum á eftir Hamri/Þór. Bónus deild kvenna