Sigurbjörn Leifur Þrastarson er staddur í Barein þar sem loftvarnarkerfi landsins keppist við að skjóta niður eldflaugar Írana sem þeir skjóta að landinu eftir að Bandaríkin og Ísrael gerðu árásir á Íran í morgun. Hann segir stöðuna erfiða og að morguninn hafi verið erfiður. „Þetta er búinn að vera svolítið leiðinlegur dagur,“ segir hann. „Ég var úti í búð þegar viðvörunin kom og þrjátíu sekúndum seinna varð sprenging í háloftunum fyrir utan þegar einu flugskeyti var skotið niður.“ „Svo eru búnar að vera stanslausar viðvaranir,“ segir Sigurbjörn. Tíðar tilkynningar berist til hans frá stjórnvöldum þar sem ástandið sé ýmist sagt öruggt eða óöruggt. „Þeir hafa sent út þrisvar að hættuástand sé búið og í öll þrjú skiptin urðu nýjar sprengingar svona korteri seinna,“ segir hann. Hann segist vera um tvo til þrjá kílómetra frá herstöð Bandaríkjamanna sem meginþorri árása Írana hefur beinst að. Sigurbjörn er tímabundið starfandi í Barein og segir að þrír mánuðir séu eftir af starfssamningi hans. „En ég nenni ekki að búa við þetta endalaust,“ segir hann. „Ef þetta leysist ekki á næstu vikum þá hugsa ég að ég vilji koma mér í burtu.“ „Ég er sem betur fer einn, ég væri ekki tilbúinn að bjóða fjölskyldunni upp á þetta,“ segir hann. Stærðarinnar sprenging í háhýsi Hann segir flestar eldflaugar sem beinist að Bairen hafi verið sprengdar í loftinu áður en þær lentu, fyrir utan nokkrar sem lentu á herstöð Bandaríkjamanna. Fyrir um klukkutíma hafi þó orðið sprenging í miðbæ Manama, höfuðborg landsins, þegar sprenging varð í háhýsi sem í eru skrifstofur. Þetta myndskeið birtist á Instagram-síðu fjölmiðilsins News of Bahrain. Sigurbjörn Leifur Þrastarson er staddur í Barein þar sem loftvarnarkerfi landsins keppist við að skjóta niður eldflaugar Írana. Hann segir daginn hafa verið erfiðan þar sem sprengingar séu tíðar. Ein sprengja hæfði háhýsi í miðborg Manama. Sigurbjörn segist hafa sett sig í samband við borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins. Hún viti af honum og hafi leiðbeint honum að fara eftir fyrirmælum yfirvalda í Barein. Hann verði látinn vita ef farið verði „Það eru einhverjir Íslendingar hérna á svæðinu og Norðurlandabúar. Ég var að tala við sænskan flugmann áðan á ganginum. Hann var svolítið skelkaður karlgreyið, skiljanlega,“ segir Sigurbjörn. „Maður getur ekki einu sinni farið út í búð án þess að það rigni einhverju að himnum ofan,“ segir hann.