Fimm leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Hákon Rafn Valdimarsson stóð á milli stanganna hjá Brentford sem mætti Burnley. Hákon hefur verið í markinu í bikarleikjum Brentford en ekki í úrvalsdeildinni. Hann fékk hins vegar tækifærið í dag þar sem aðalmarkvörðurinn Caoimhin Kelleher var á fæðingardeildinni. Leikurinn byrjaði vel fyrir Brentford sem skoraði þrjú mörk á fyrsta hálftímanum en eftir það fékk Hákon á sig þrjú mörk og Burnely jafnaði í 3-3. Rétt fyrir hálfleik skoraði Michael Kayode sjálfsmark og í upphafi seinni hálfleiksins kom Jaidon Anthony boltanum fram hjá Hákoni, 2-3. Það gerði Zian Flemming svo líka eftir um klukkutíma leik og staðan jöfn, 3-3. Mikkel Damsgaard skoraði hins vegar dramatískst sigurmark í uppbótatímanum og lokatölur urðu 4-3 fyrir Brentford. Liverpool skoraði fimm mörk Á Anfield tók Liverpool á móti West Ham í sjö marka leik. Hugo Ekitiké skoraði strax á fimmtu mínútu fyrir Liverpool. Fyrirliðin Virgil van Dijk tvöfaldaði forystuna á 24. mínútu og rétt fyrir hálfleik kom þriðja markið frá Alexis MacAllister, 3-0. Tomás Soucek minnkaði muninn í 3-1 strax í upphafi seinni hálfleiks en Cody Gakpo gerði forystuna aftur þægilega með marki á 70. mínútu, 4-1. Leikurinn var þó ekki búinn því Taty Castellanos skoraði annað mark West Ham fimm mínútum síðar, 4-2, og sjöunda markið leit svo dagsins ljós þegar Axel Disasi skoraði sjálfsmark og lokatölur urðu 5-2 fyrir Liverpool. Liverpool jafnar þar með Manchester United að stigum í fjórða til fimmta sætinu en United á leik til góða. Man City tveimur stigum frá toppnum Manchester City hafði svo betur gegn Leeds á útivelli 0-1 með marki Antoine Semenyo. Man City er nú aðeins tveimur stigum á eftir toppliði Arsenal. Úrslit dagsins Bournemouth - Sunderland 1-1 Burnley - Brentford 3-4 Liverpool - West Ham 5-2 Newcastle - Everton 2-3 Leeds - Man City 0-1