Á hluthafafundi Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar hf. 26. febrúar var samþykkt að breyta nafni félagsins í Beru hf. Þar var einnig samþykkt að allur rekstur félagsins sem tengist framleiðslu og sölu á drykkjarvörum verði framseldur til dótturfélags, sem heitir Ölgerðin Egill Skallagrímsson. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Beru. Þar segir að breytingarnar taki gildi 1. mars. Nafnið Bera hefur beina skírskotun til sögu Egils Skallagrímssonar en það var nafn móður hans. Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar hf., nú Bera hf., mun láta af störfum sem forstjóri félagsins og skipta um hlutverk. Hann býður sig fram til stjórnar og gefur kost á sér til stjórnarformennsku móðurfélagsins, Beru. Jón Þorsteinn Oddleifsson hefur verið ráðinn forstjóri Beru. Hann var áður framkvæmdastjóri fjármála- og mannauðssviðs félagsins. Þá hefur Óli Rúnar Jónsson verið ráðinn framkvæmdastjóri Ölgerðarinnar en hann var framkvæmdastjóri markaðssviðs Beru. Bera hf. er skráð í Kauphöll og er móðurfyrirtæki nokkurra rekstrarfélaga. Áætlað er að velta samstæðunnar á næsta fjárhagsári verði hátt í 60 milljarðar króna og samanlagður starfsmannafjöldi um 600 manns. Eftir breytingarnar verða rekstrarfélögin Ölgerðin, Kjarnavörur, Gæðabakstur, Collab Export, Iceland Spring, Danól og Mýrar fasteignafélag systurfélög í eigu Beru, sem jafnframt veitir félögunum stoðþjónustu. Andri Þór leiði sóknina sem er fram undan Andri Þór hefur sinnt starfi forstjóra félagsins í rúma tvo áratugi. Hann mun í nýju hlutverki jafnframt sinna sértækum verkefnum með áherslu á fyrirliggjandi tækifæri til vaxtar félagsins eftir að hann lætur af störfum sem forstjóri. „Með tilkomu Ölgerðarinnar sem sérstaks dótturfélags innan Beru sá ég ákveðin tækifæri til breytinga og öflugrar sóknar samstæðunnar. Ég bar hugmynd mína um að láta af störfum sem forstjóri Ölgerðarinnar og bjóða mig fram til stjórnar á næsta aðalfundi, undir stjórnarformanninn Boga Þór Siguroddsson,“ er haft eftir Andra Þór í fréttatilkynningunni. „Úr þeim samtölum kom sú hugmynd að ég myndi jafnframt sækjast eftir því að taka við af honum sem stjórnarformaður og sinna stórum og sértækum verkefnum fyrir félagið sem snúa meðal annars að framtíðaruppbyggingu erlenda hluta starfseminnar og viðskiptaþróun með áherslu á ytri vöxt félagsins.“ Haft er eftir Boga Þór Siguroddssyni, stjórnarformanni Beru og stærsta einstaka hluthafa félagsins, að breytingin sé skynsöm á tímamótunum. „Með þeim áherslubreytingum sem verða með tilkomu Ölgerðarinnar sem sérstaks dótturfélags Beru, fannst mér rétt að Andri Þór kæmi ekki aðeins í stjórn móðurfélagsins, heldur tæki við stjórnarformennsku félagsins og leiddi þá sókn sem fram undan er,“ segir Bogi Þór.