Stranger Things kemur Háafossi á kortið

Líklegt er talið að ferðamenn sem fara að Háafossi í Þjórsárdal verði margfalt fleiri á þessu ári en í fyrra, eftir að fossinn birtist í lokaþætti Stranger Things þáttaraðarinnar. Fjöldi þeirra sem gúggluðu fossinn jókst um fimm þúsund prósent eftir þáttinn. Þrátt fyrir vetrarfærð voru þónokkrir ferðamenn við fossinn þegar fréttastofu bar þar að. Öll sögðust þau hafa frétt af fossinum vegna Stranger Things. Í lokaatriði Stranger Things þáttaraðarinnar sést ein aðalpersónan standa við gljúfrið framan við Háafoss og Granna. Meira en 100 milljónir manna horfðu á þáttinn á Netflix. Vinsældir Háafoss í Þjórsárdal hafa stóraukist eftir að fossinn birtist í lokaþætti þáttaraðarinnar Stranger Things. Til stendur að koma upp útsýnispalli og bæta aðstöðuna þar í kring. Eftir að þátturinn var sýndur um áramótin mældist um 5 þúsund prósenta aukning í leit að nafni fossins á netinu. Til að bregðast við þessu á að bæta aðstöðuna við fossinn. „Það liggja fyrir nú þegar tilbúnar hönnunarhugmyndir að útsýnispalli og ekki bara útsýnispalli heldur líka 500 metra löngu handriði meðfram bjargbrúninni til þess að tryggja að fólk geti ekki farið óvart þarna fram af, þetta er alveg 120 metra fall þarna beint niður,“ segir Haraldur Þór Jónsson, oddviti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Fleiri framkvæmdir eru fyrirhugaðar. „Það er alveg augljóst að þarna þarf að bæði bæta aðgengi að svæðinu, því vegurinn er lélegur, en við þurfum líka að koma upp viðundandi salernsaðstöðu á svæðinu,“ segir Haraldur Þór. Skeiða- og Gnúpverjahreppur vonast til að geta hafið framkvæmdir sem fyrst. „Við erum náttúrulega að vonast til að fá fjármagn til að byggja útsýnispallinn núna seinna í sumar. Ég held að það væri gríðarlega mikilvægt miðað við þróunina sem við sjáum,“ segir Haraldur Þór. Ferðamannastofa telur að vegna vinsælda Stranger Things stóraukist áhugi ferðamanna á fossinum á næstu misserum, ekki síst yfir sumartímann. Frá því að Ferðamannastofa hóf talningu ferðamanna við Háafoss í byrjun febrúar hafa um sautján hundruð farið að fossinum. „Vegurinn er merktur sem lokaður og við erum samt að sjá hátt í 2000 manns núna í febrúar,“ segir Haraldur Þór. „Það kæmi mér ekki á óvart ef við sæum eitt til tvö hundruð þúsund í sumar. Við þurfum allavega að búa okkur undir það.“