Dalamenn vígðu nýja íþróttamiðstöð í Búðardal í dag. Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, klippti á borða og séra Snævar Jón Andrésson blessaði húsið. Í nýju íþróttamiðstöðinni er íþróttahús og líkamsræktaraðstaða en líka sundlaug, gufubað og heitir pottar. Þetta er í fyrsta sinn sem það er sundlaug í Búðardal. Hingað til hafa Dalamenn æft íþróttir og synt í Laugum í Sælingsdal sem er í 20 mínútna aksturs fjarlægð frá Búðardal. Íþróttafélögin í Búðardal standa fyrir ýmisskonar íþróttaiðkun. Til viðbótar við boltaíþróttirnar er hægt að æfa badminton, fimleika og glímu svo eitthvað sé nefnt. Guðrún B. Blöndal, formaður íþróttafélagsins Undra er ein þeirra sem fagnar nýju aðstöðunni. Ekki síst bendir hún á að fyrir flest börn í íþróttum í Dölunum þýðir þetta minni tími í akstur daglega. Jóhanna Sigrún Árnadóttir, formaður Ungmennasambands Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga sagði Dalamenn tryllta af hamingju yfir nýju aðstöðunni. Hún er ein þeirra sem hlakkar til að komast í nýju sundlaugina sem opnar um miðjan mars. Í tilefni dagsins færðu sveitarfélögin fjögur á Snæfellsnesi, Grundarfjarðarbær, Eyja- og Miklaholtshreppur, Snæfellsbær og sveitarfélagið Stykkishólmur, Dalabyggð 500.000 kr að gjöf til kaupa á áhöldum og tækjum í sundlaugina.