Ungir Vinstri grænir hafa kosið sér nýja stjórn. Illugi Gunnarsson er nýkjörinn formaður og Ragnhildur Björt Björnsdóttir, Böðvar Stefánsson og Björn Gústav Jónsson stjórnarmeðlimir. „Ég hef lengi verið virkur í flokknum og er sonur fyrrverandi formanns, Katrínar Jakobsdóttur, en ég er einnig stjórnarmeðlimur í Vinstri grænum í Reykjavík og tók við þeirri stöðu í haust,“ segir Illugi í viðtali við fréttastofu. Þá hefur hann einnig setið í stjórn UVG síðan í haust. Illugi kveðst spenntur fyrir baráttunni í komandi sveitarstjórnarkosningum um land allt. „Ég er mjög spenntur fyrir framboði Vinstri grænna og Vor til vinstri, sem heitir Vinstrið, og einnig fyrir öllum framboðum VG um landið allt. Það eru mikil tækifæri fram undan fyrir vinstrafólk á Íslandi,“ segir Illugi.