Björk og Rosalia vöktu mikla athygli á Brit-tónlistarverðlaunahátíðinni

Tónlistarkonan Björk Guðmundsdóttir kom fram með spænsku söngkonunni Rosaliu á Brit-Awards, bresku tónlistarverðlaunahátíðinni, í kvöld. Þær sungu saman lag sitt Berghain sem þær unnu saman, auk tónlistarmannsins Yves Tumor, fyrir plötu Rósalíu LUX , sem kom út á síðasta ári. Rosalia birti myndskeið af flutningi þeirra í færslu á samfélagsmiðlinum X . Eins og sjá má og heyra vakti flutningur þeirra mikla athygli á hátíðinni og áhorfendur tóku vel undir með listakonunum. Rosalia fékk einnig verðalun sem besti alþjóðlegi listamaðurinn, og skaut þar mörgum heimsþekktum listamönnum ref fyrir rass, eins og Bad Bunny, Lady Gaga, Sabina Carpenter og Tayolor Swift sem einnig voru tilnefnd í sama flokki auk Chappell Roan, CMAT, Doechii, sombr, og Tyler, The Creator. Brit verðlaunahátíðin var haldin í Co-op Live Arena í Manchester. Þetta er í fyrsta sinn í 47 ára sögu hátíðarinnar sem hátíðin er haldin utan Lundúna.