Nurul Amin Shah Alam fannst látinn 24. febrúar í Norður-New York ríki nokkrum dögum eftir að honum var sleppt úr haldi Tolla- og landamærastofnunar Bandaríkjanna. Í frétt breska ríkisútvarpsins BBC segir að starfsmenn Tolla- og landamærastofnunar Bandaríkjanna hafi keyrt hann úr varðhaldi að kaffihúsi sem var í margra kílómetra fjarlægð frá heimili hans í Buffalo 19. febrúar. Ekki er vitað hver dánarorsök mannsins var en veður var kalt þennan dag. Shah Alam hafði verið í gæsluvarðhaldi lögreglu í tæpt ár vegna líkamsárásar og vopnaburðar vegna atviks þar sem tveir lögreglumenn slösuðust, samkvæmt lögreglunni. Hann var síðan látinn laus gegn tryggingu eftir að hafa játað á sig sök. Hann var síðan færður aftur í varðhald, í þetta sinn af Tolla- og landamærastofnun Bandaríkjanna vegna þess að hann var ekki bandarískur ríkisborgari. Þegar ljóst var að stofnunin gat ekki sent hann úr landi vegna stöðu hans sem flóttamanns þá var honum sleppt með fyrrgreindum afleiðingum. Flúði heimaland sitt vegna stríðsátaka Vinnubrögð tolla- og landamærastofnunar Bandaríkjanna hafa verið gagnrýnd harðlega af fjölskyldu mannsins en hún var ekki látin vita þegar Shah Alam var sleppt. Shah Alam var 56 ára gamall og talaði litla sem enga ensku. Shah Alam flúði heimaland sitt vegna stríðsátaka í Myanmar í desember 2024 en hann og fjölskylda hans eru Arakan Rohingjar. Borgarstjóri Buffalo, Sean Ryan, sagði málið ákaflega óhuggulegt og hefur kallað eftir því að andlát Shah Alam verði rannsakað. Hann segir að svo virðist sem starfsmenn Tolla- og landamærastofnunar Bandaríkjanna, sem keyrðu Shah Alam að kaffihúsinu, hafi engan veginn vitað hvernig þeir ættu að bera sig að gagnvart nær blindum einstaklingi sem var ringlaður og talaði nær enga ensku. Handtaka mannsins byggð á misskilningi Sonur mannsins, Mohamad Faisal, sagði í samtali við BBC að handtaka föður hans á síðasta ári hefði upphaflega byggt á misskilningi við lögreglumenn. Shah Alam hefði verið á göngu með gardínustöng sem hann hefði notað sem staf en villtist og gekk inn í lóð íbúa í Buffalo sem hringdi á lögreglu. Þegar lögregla kom á svæðið skildi Shah Alam ekki fyrirskipanir lögreglunnar og var handtekinn á staðnum. Aðalsaksóknari New York, Letitia James, segir að verið sé að fara yfir málið. „Nurul Amin Shah Alam flúði þjóðarmorð og kom hingað til lands til að öðlast öryggi og tækifæri. Í staðinn endaði líf hans með snöggum hætti. Enginn sem kemur hingað sem flóttamaður ætti að vera skilinn eftir í hættu,“ sagði í tilkynningu frá henni.