Heimildarþættirnir Reality Check: Inside America's Next Top fjalla um menningarfyrirbærið og fyrirsætukeppnina þar sem Tyra Banks boðaði nýja ímynd fyrirsæta og nýja útlitsstaðla. Í heimildarþáttunum er dregið fram að þvert á yfirlýsingar hafi þátttakendur ítrekað verið niðurlægðir, upplifað líkamssmánun og jafnvel misst af ýmsum tækifærum vegna þátttöku sinnar.