Gamla fréttin: Fimmtíu tonn í Aflakaupabanka

Þessa dagana er árangurinn af starfi Aflakaupabankans að byrja að koma í ljós. Safnað hefur verið rúmlega 50 tonnum af heilfrystum fiski affrystitogurum og fundist hefur  markaður fyrir tindabikkjubörð í Frakklandi, en tindabikkja er nálægt helmingur þess afla sem bankanum hefur borist. Frá þessu sagði í Fiskifréttum 25. maí 1990.