Hamingjusöm til æviloka eða föst í draumaveröld?

Frá því að fimmta sería þáttaraðarinnar Stranger Things var sýnd um áramótin hafa ýmsar samsæriskenningar sprottið upp um hvort endirinn sé yfir höfuð raunverulegur. Aðdáendum þáttanna finnst margt bogið við lokaþættina og margir spá því að von sé á aukaþætti eða bíómynd. Sumir telja þetta hluta af snilldarmarkaðssetningu á meðan aðrir telja að Duffer-bræður, skaparar þáttanna, hafi einfaldlega misst boltann í blálokin. Í Heimskviðum helgarinnar var fjallað um helstu kenningar um endalok Stranger Things. Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að neðan. Rétt er að vara við að umfjöllunin inniheldur alls konar upplýsingar um lokaþætti sjónvarpsþáttanna vinsælu. Aðdáendur Stranger Things þáttaraðarinnar eru margir hverjir vægast sagt ósáttir við hvernig þættirnir enduðu. Sprottið hafa upp ýmsar kenningar, meðal annars um hvort endalokin séu raunveruleg. Heimskviður köfuðu í heim samsæriskenninga um þáttinn. Þáttaröðin Stranger Things hefur notið fádæma vinsælda frá því fyrsti þátturinn var sýndur á streymisveitunni Netflix fyrir um tíu árum. Svo mikilla að það má segja að Stranger Things hafi tryggt stöðu Netflix sem vinsælustu streymisveitu í heimi. Netflix þoldi til dæmis ekki álagið þegar nýjustu þættirnir um ungmennin úr bænum Hawkins sem berjast við yfirnáttúruleg fyrirbæri voru frumsýndir og hrundi skömmu eftir að þættirnir urðu aðgengilegir í nóvember í fyrra. Enda höfðu aðdáendur þurft að bíða lengi, frá því sería fjögur var sýnd um mitt ár 2022. Aðdáendur Stranger Things þáttaraðarinnar eru margir hverjir vægast sagt ósáttir við hvernig þættirnir enduðu. Sprottið hafa upp ýmsar kenningar, meðal annars um hvort endalokin séu raunveruleg. Heimskviður köfuðu í heim samsæriskenninga um þáttinn. Lag Queen, Who Wants To Live Forever, hljómaði í stiklunni fyrir seríu 5 en heyrðist aldrei í þáttunum. Talið er að yfir hundrað milljónir manna hafi horft á fimmtu - og síðustu - seríu þáttaraðarinnar, en Stranger Things hefur í heild verið streymt meira en þúsund milljón sinnum. „Stranger Things er eiginlega núna svona flaggskip Netflix,“ segir Hilmar Smári Finsen, sem sér um markaðs- og kynningarmál hjá CCP Games. „Það sem að eiginlega nær að útskýra þessar vinsældir, eða ég tel að nái því, er að þeir ná svo yfir breiddina,“ segir Hilmar Smári. Yngri kynslóðin geti horft á þættina með foreldrum sínum. „Og fengið að upplifa og sjá hvernig það er að þroskast yfir þennan skemmtilega aldurstíma sem er 10-16 ára sirka og foreldrarnir mögulega geta tengt við tímabilið sem þau eru að ganga í gegnum þarna,“ segir Hilmar Smári, en þættirnir gerast á níunda áratugnum, þ.e. á tímabilinu 1983 til 1989. Hann segir þetta tímabil vinsælt núna og fólk horfi á þennan tíma með rósagleraugum. Þá veki spennan og dulúðin í hverjum þætti áhuga fólks. Hann eignar leikurum þáttanna einnig hluta heiðursins. „Leikararnir náðu allan daginn athygli allra og ást og það er svona það sem byrjar þetta eiginlega.“ „Ekkert af þessu er raunverulegt“ Lokaþáttur Stranger Things hefur fengið vægast sagt blendnar viðtökur. Þeir sem ekki hafa horft á þáttinn - og vilja ekki láta spilla endinum fyrir sér - ættu eflaust að hætta að lesa núna og snúa aftur þegar þeir hafa lokið við þáttaseríuna. Aðdáendur Stranger Things þáttaraðarinnar eru margir hverjir vægast sagt ósáttir við hvernig þættirnir enduðu. Sprottið hafa upp ýmsar kenningar, meðal annars um hvort endalokin séu raunveruleg. Heimskviður köfuðu í heim samsæriskenninga um þáttinn. Í myndbandinu hér að ofan sést ein persóna þáttanna reyna að koma vinum sínum í skilning um að veröldin sem þau sjái sé ekki raunveruleg. Og einhvern veginn svona virðist mörgum aðdáendum þáttanna einnig líða. „Þessi samsæriskenning, sem tekur svo bara völdin yfir netinu bara skyndilega, hún er ótrúlega skemmtileg,“ segir Hilmar Smári. Hann segist þó ekki vera einn þeirra sem trúa á kenningar um falskan endi. „Ég ætla ekkert að segja að fólk hafi endilega rangt fyrir sér eða neitt því að þetta er fólk sem er að rífa í sig heimildarmyndina og hvern þátt og hverjar sekúndur fyrir sig. Þannig að þau hafa meiri ást á þáttunum mögulega heldur en þeir sem skrifuðu þetta.“ Aðalsöguhetjur þáttanna eru þau Mike, Will, Lucas, Dustin, Max og ofurhetjan Eleven, auk þeirra Nancy, Jonathan, Steve, Ericu og Robin. Móðir Wills, Joyce, og lögreglustjórinn Hopper, spila einnig stór hlutverk, en fjölmargir aðrir koma einnig við sögu. Þættirnir sækja mjög í heim Dungens and Dragons, sem mætti útleggja á íslensku sem spunaspil. Aðalóvinirnir eru hulduvera sem vinirnir kalla Mind Flayer og illmennið Vecna - sem gengur líka undir nöfnunum Henry, Mister Whatzit og númer eitt. Skósveina Vecna kalla vinirnir Demogorgons, heiti sem einnig er fengið úr spunaspili. Skilnaðarkenningin og undirgefniskenningin Frá því að lokaþátturinn var sýndur um áramótin hafa ýmsar samsæriskenningar sprottið upp, sem lifa enn góðu lífi á samfélagsmiðlum. Margir telja að það eigi eftir að koma út einn þáttur til viðbótar - með raunverulegu endalokunum, eða jafnvel að síðustu þrír þættirnir - sem hafa verið gagnrýndir hvað harðast - verði „leiðréttir” eða endurgerðir, mögulega í formi bíómyndar. Þessu hafa Duffer-bræður staðfastlega neitað. Það hefur þó ekki stoppað fólk í að velta fyrir sér hvort og hvenær þetta gerist. Hilmar Smári segist mögulega geta trúað einni samsæriskenningunni. „Einn Duffer-bræðranna var að ganga gegnum skilnað og fyrrum eiginkona hans er sú sem skrifaði Fear Street-myndirnar og er virkilega góð í að tengja saman þessa rauðu þræði. Hann hefur misst svona punktinn að geta talað um þetta heima þannig að kannski er það ástæðan fyrir því að það sé ekki lokað öllum þessum þráðum.“ Ein kenningin var sú að tilkynnt yrði um framhaldið á Ofurskálinni. Ekkert gerðist þó þar sem gefur til kynna að von sé á nýjum þætti. Fleiri dagsetningar hafa verið nefndar, eins afmælisdagur sögupersónunnar Will úr þáttunum, sem er 22. mars, og tíu ára afmæli Stranger Things í byrjun júlí. Þá hefur dagsetningin 23. apríl verið nefnd í tengslum við nýja teiknimyndaþáttaröð um sögupersónurnar sem kemur út þá. Hversu lengi aðdáendur eru tilbúnir að bíða á svo eftir að koma í ljós en eftir því sem lengri tími líður frá því að síðasti þáttur var sýndur fækkar þó í hópi þeirra sem trúa að þetta séu ekki endalokin. „Við getum túlkað þetta sem þessi stig sorgar: hvar ertu kominn þegar þættinum lýkur, hversu vel hafa þættirnir náð að undirbúa þig til þess að kveðja?“ segir Hilmar Smári. Hann telur víst að samsæriskenningarsmiðir haldi í vonina áfram. „Miðað við hvernig þetta endar, að það geti komið eitthvað eftir fimm til tuttugu ár þegar Netflix vantar auka pening. Og ef þeir ákveða að gera það þá eru þeir komnir með fínan gagnagrunn um hvað þeir geta gert. Þeir þurfa eiginlega ekki að skrifa neitt sjálfir,“ segir Hilmar Smári og vísar til þess hvernig aðdáendur hafa spekúlerað um framhaldið og samið sögur um hvað taki við hjá söguhetjunum. Hamingjusöm og frjáls eða fangar hugans? Eitt af því sem aðdáendur hafa sett út á er hversu auðveldlega hópurinn sigrar illmennið Vecna í lokin. Þá hefur verið bent á alls kyns ósamræmi í lokaköflum þáttaraðarinnar, sem margir vilja meina að þýði að þetta séu alls ekki endalokin, heldur einhvers konar falskur endir. Söguhetjurnar - eða í það minnsta aðalsöguhetjan Mike - séu í raun fastar í draumaveröld Vecna. Meðal þess sem bent hefur verið á að gangi ekki upp er orðalag Wills, þegar hann kom út úr skápnum með langri ræðu. Aðdáendur Stranger Things þáttaraðarinnar eru margir hverjir vægast sagt ósáttir við hvernig þættirnir enduðu. Sprottið hafa upp ýmsar kenningar, meðal annars um hvort endalokin séu raunveruleg. Heimskviður köfuðu í heim samsæriskenninga um þáttinn. Þar segist Will hafa haft gaman af að týnast í skóginum, en ólíklegt má telja að honum hafi líkað það, enda hófst þáttaröðin á að skelfileg vera hafði Will, þá tólf ára, á brott með sér í skuggaveröld, þar sem hann var aleinn og týndur í skóginum í heila viku. Þá segist hann hafa gaman af að fara með vinunum á Melvalds til að fá sér sjeik, en það hafa þeir aldrei sést gera, en áhorfendur þekkja Melvalds einungis sem matvöruverslun, þar sem Joyce mamma Wills hafði unnið. Því er ólíklegt að Will myndi ruglast á þessu. Hörðustu aðdáendur hafa bent á að samkvæmt leikriti um æsku illmennisins Vecna, hafi Melvalds verið skyndibitastaður. Upptaka af leikritinu er væntanleg á Netflix. Aðdáendur Stranger Things þáttaraðarinnar eru margir hverjir vægast sagt ósáttir við hvernig þættirnir enduðu. Sprottið hafa upp ýmsar kenningar, meðal annars um hvort endalokin séu raunveruleg. Heimskviður köfuðu í heim samsæriskenninga um þáttinn. Eftir að aðalsöguhetjurnar hafa sigrað Vecna/Henry, er bærinn þeirra baðaður sólskini og allir hermenn á bak og burt, og við sjáum hópinn útskrifast úr framhaldsskóla. Margt við útskriftaratriðið þykir ankannalegt. Áhorfendur sitja allir með hendur í skauti, og þykja þannig líkjast Henry í háttum. Nemendur eru í appelsínugulum búningum, sem minna á fangabúninga, en aðdáendur hafa bent á að grænn er litur skólans, ekki appelsínugulur. Aðalræðumaður er Dustin, þrátt fyrir að hafa verið einstaklega óvinsæll meðal nemenda fyrr í seríunni. Hann klæðist bol merktum Hellfire-klúbbnum, sem bæjarbúar töldu að bæri ábyrgð á dauða fjögurra ungmenna í bænum. Engu að síður er honum fagnað mjög. Þá er öll fjölskylda Mike nema yngsta systirin komin með sömu klippingu og Henry, svo fátt eitt sé nefnt. Aðdáendur Stranger Things þáttaraðarinnar eru margir hverjir vægast sagt ósáttir við hvernig þættirnir enduðu. Sprottið hafa upp ýmsar kenningar, meðal annars um hvort endalokin séu raunveruleg. Heimskviður köfuðu í heim samsæriskenninga um þáttinn. Dustin klæðist bol merktum Hellfire-klúbbnum, sem bæjarbúar héldu að bæri ábyrgð á hrottalegum morðum. Misræmið er líka hjá eldri hópnum. Steve er farinn að kenna hafnabolta, þrátt fyrir að hafa æft körfubolta og sund í skóla, en hafnaboltakylfa var það vopn sem hann notaði oftast gegn Vecna eða skósveinum hans. Þá lætur hann sig dreyma um að kaupa hús í Forrest Hills, en í þáttaröð fjögur sáum við að þar er hjólhýsagarður, sem ólíklegt er að hinn efnaði Steve hefði áhuga á að búa í. Eftir lokabardagann við Vecna voru söguhetjurnar teknar höndum af hermönnum, en því er aldrei svarað hvernig þau losnuðu úr haldi. Og þrátt fyrir að Hopper hafi drepið fjölda hermanna gengur hann ekki aðeins laus heldur fær hann aftur gamla starfið sitt sem lögreglustjóri. Það eru þó ekki bara villur og ósamræmi sem aðdáendur hafa bent á að gefi til kynna að endirinn sé ekki raunverulegur, heldur einnig alls kyns vísbendingar. Aðdáendur Stranger Things þáttaraðarinnar eru margir hverjir vægast sagt ósáttir við hvernig þættirnir enduðu. Sprottið hafa upp ýmsar kenningar, meðal annars um hvort endalokin séu raunveruleg. Heimskviður köfuðu í heim samsæriskenninga um þáttinn. Til dæmis sést ein persóna spila tölvuleikinn Ghosts ‘n Goblins , en leikurinn er þannig uppbyggður að eftir að spilarinn hefur „unnið“ fær hann þau skilaboð að þetta hafi allt verið tálsýn og að hann þurfi að leika allan leikinn upp á nýtt til að raunverulega vinna leikinn. Það sem keyrir samsæriskenningarsmiði ekki síst áfram eru orð Duffer-bræðra sjálfra, sem hvöttu áhorfendur til að taka vel eftir smáatriðum í þáttunum. Þá bentu þeir fólki á að horfa á nokkrar myndir sem höfðu veitt þeim innblástur, til dæmis The Truman Show, sem fjallar eins og margir vita um mann sem lifir í gerviveröld. Aðdáendur Stranger Things þáttaraðarinnar eru margir hverjir vægast sagt ósáttir við hvernig þættirnir enduðu. Sprottið hafa upp ýmsar kenningar, meðal annars um hvort endalokin séu raunveruleg. Heimskviður köfuðu í heim samsæriskenninga um þáttinn. The Truman Show veitti Duffer-bræðrum innblástur en ekki er ljóst með hvaða hætti. Í heimildarmynd um gerð þáttanna sögðu bræðurnir meðal annars að þeir hefðu ekki verið búnir að semja lokaþáttinn þegar tökur hófust. Þetta þykir mörgum ótrúlegt í ljósi þess hve langur tími er liðinn frá því að sería fjögur kom út. Þá var engu til sparað við gerð þáttanna, en heildarkostnaður var hátt í fimm hundruð milljónir dollara, eða um sextíu milljarðar í íslenskum krónum. Margir setja spurningarmerki við að farið væri af stað í svo dýra framleiðslu án þess að vera með fullklárað handrit. Sumir halda því jafnvel fram að heimildarmyndin sé ekki heldur raunveruleg heldur gerð til að slá ryki í augu áhorfenda. Byler, Byler, Byler Stór hluti aðdáenda trúir á svokallað Byler, sem er samsett úr Byers og Wheeler og stendur fyrir Will Byers og Mike Wheeler. Þessir aðdáendur hafa verið vissir um að þeir Mike og Will myndu enda saman. Mike og Will eru bestu vinir en í seríu fjögur varð ljóst að Will er samkynhneigður og ástfanginn af Mike, en Mike hefur átt í sambandi við Eleven. Í fyrstu fjórum þáttunum af seríu fimm er Will í aðalhlutverki og virðist bera von í brjósti um að samband hans við Mike geti þróast yfir í eitthvað meira. Það er í algjörri andstöðu við hvernig hann hagaði sér í seríu fjögur, þar sem hann lék nokkurs konar Cyrano de Bergerac, og setur hamingju Eleven og Mikes ofar eigin hagsmunum, með því að gefa Eleven heiðurinn af málverki sem hann málaði fyrir Mike og þrýsta á Mike að sýna henni ást. Hver var Cyrano de Bergerac? Cyrano de Bergerac var franskt skáld sem lifði á 17. öld. Um hann var gert frægt leikrit þar sem sögð er sagan af því hvernig Cyrano, sem þótti ófríður og með tröllslegt nef, er ástfanginn af Roxönnu en þorir ekki að tjá henni ást sína. Hann gerist milligöngumaður fríðari manns og matar hann á orðum og skáldskap, sem Roxanna fellur fyrir. Hún varð í raun ástfangin af persónuleika Cyranos. Stefið um Cyrano er vel þekkt og hefur oft verið notað í bókum, bíómyndum og öðrum skáldskap. Mike horfir á Will eftir að Will gaf honum málverkið. Þegar síðustu fjórir þættirnir komu út var vonin aftur á móti orðin að engu og ekkert varð af slíku sambandi. Gáfu Duffer-bræður falska von um Byler? Sá hópur aðdáenda sem átti von á að Byler yrði að veruleika telur sig illa svikinn af endalokunum og sakar Duffer-bræður um svokallað Queer baiting , sem gæti útlagst á íslensku sem hýrbeita. „Hugmyndin er sú að það sé verið að láta áhorfendur, eða hinsegin áhorfendur, halda að það sé hinsegin umfjöllunarefni og birtingarmyndir án þess þó að ganga alla leið,“ segir Sjöfn Asare, bókmenntafræðingur og rithöfundur. Sjöfn vinnur að doktorsverkefni í almennri bókmenntafræði þar sem hún skoðar jaðarsetta líkama í íslenskum samtíðarbókmenntum. Hún segist í raun alltaf skoða allt afþreyingarefni með þessum augum, ekki bara í náminu. Að hennar mati er persónan Will góð birtingarmynd hinsegin einstaklings á þessum tíma. „Sem líka kemur út úr skápnum og fær svona koma-út-úr-skápnum senu og hann er ekki drepinn sem er mjög óvenjulegt fyrir hinsegin persónur, þær venjulega eru látnar bara fjúka.“ Hún segir þó að mögulega geri hún ekki nægar kröfur um birtingarmyndir hinsegin fólks. „Ég fæddist 1991, þannig að ég er vön því að þegar ég var hinsegin barn og unglingur þá var ekkert í boði, það var ekki neitt, þannig að mér finnst þetta bara geggjað en ég held kannski að hinsegin áhorfendur sem eru yngri en ég, þeir vita að þeir eiga betra skilið og þora að biðja um það.“ Margir sem vonuðu að Byler yrði að veruleika, vildu sjá þáttaseríu eins og Stranger Things, sem er með mjög breiðan áhorfendahóp og nær til mjög margra, sýna tvær aðalpersónur af sama kyni enda saman. „Það hefði verið rosalega sterkt,“ segir Sjöfn. Hún telur að ótti við að styggja hóp áhorfenda frá hafi orðið til þess að ekkert varð af þessu. Það hefði verið stórt skref í allri réttindabaráttu og birtingarmyndum og vissulega held ég að það hafi ekki verið gert út af því að fólk veit að það hefði verið brugðist við á neikvæðan hátt af stórum hluta fólks.“ Áhugasamir um það á hverju kenningar um byler eru byggðar og hvernig þær eru rökstuddar geta leitað að #byler á samfélagsmiðlum. Þættirnir enda á að Mike lýsir hvernig fór fyrir vinunum. Parið Lucas og Max fengu sinn hamingjusama endi, Dustin kemst inn í góðan háskóla, og jafnvel Eleven, sem talið var að hefði fórnað lífi sínu, er sögð lifa hamingjusöm til æviloka í fjarlægu landi - með að minnsta kosti tveimur fossum - en þess má geta að það atriði var tekið upp á Íslandi. Will er sagður hafa flutt langt í burtu, á stað þar sem hann fann ást og samþykki. Sögumaðurinn Mike endar sjálfur einn við ritvélina, með málverkið eftir Will uppi á vegg. Margir hafa sett spurningarmerki við hvort aðalsöguhetjurnar hafi í raun fengið góðan endi, sér í lagi Eleven, Mike og Will, þó að það geti litið þannig út á yfirborðinu. Aðdáendur Stranger Things þáttaraðarinnar eru margir hverjir vægast sagt ósáttir við hvernig þættirnir enduðu. Sprottið hafa upp ýmsar kenningar, meðal annars um hvort endalokin séu raunveruleg. Heimskviður köfuðu í heim samsæriskenninga um þáttinn. Köfum aðeins dýpra í hvað Mike segir um framtíð Wills. Bærinn sem hann segir að Will fari til kallast Vallaki, en þeir sem þekkja til í heimi spunaspils vita að Vallaki virðist bara vera frjáls á yfirborðinu. Þar er aftur á móti enga hamingju að finna, einungis falska von. Aðdáendur sem trúðu á Byler lifa enn í voninni um að með nýjum þætti eða bíómynd fái þeir Mike og Will loksins hamingjusaman endi – saman. „Sem bókmenntafræðingi finnst mér geggjað að einhver sé bara að lesa í minnstu, minnsta smáatriði,“ segir Sjöfn. „Það góða við list er að þú mátt gera hana að þinni og ég má ákveða hvernig Stranger Things endar í mínum huga og í mínum huga er Mike bara líka hinsegin en hann og Will byrja ekki saman. Þeir verða alltaf bestu vinir og eru tengdir í gegnum lífið og ganga í gegnum ást og sorg og hver veit ekki hvað.“ Aðdáendur Stranger Things þáttaraðarinnar eru margir hverjir vægast sagt ósáttir við hvernig þættirnir enduðu. Sprottið hafa upp ýmsar kenningar, meðal annars um hvort endalokin séu raunveruleg. Heimskviður köfuðu í heim samsæriskenninga um þáttinn. „Besta ókeypis markaðssetning sem hefur verið gerð“ Hér hefur einungis verið stiklað á stóru hvað varðar misræmi og galla á söguþræðinum og öðru sem samsæriskenningarnar byggja á. Þau sem vilja kynna sér þær betur geta leitað á samfélagsmiðlum eftir myllumerkinu #conformitygate - sem gæti útlagst sem undirgefniskenningin - eða #divorcegate, sem er kenningin um áhrif skilnaðar annars Duffer-bræðranna. Annað sem má nefna eru orð sem leikarar þáttanna létu falla í viðtölum fyrir sýningu þeirra, þegar þeir voru beðnir um að lýsa endalokunum með einu orði. Tveir notuðu orðið „meta“, í sitt hvoru viðtalinu. Lauslega þýtt þýðir „meta“ eitthvað sem fjallar um eða vísar til sín sjálfs. Finn Wolfhard, sem leikur Mike, útskýrði þetta þannig að þau enduðu á að endurskrifa alla söguna. En það hefur ekki gerst. Ekki enn alla vega. Einn leikari notaði orðið traitor, eða svikari, en enginn slíkur er í lokaþættinum, nema að hann hafi átt við að sjálfur þátturinn væri svikinn? Þess ber að geta að kenningarnar, hvort sem það er um endalokin eða um Byler, eru sjaldnast úr lausu lofti gripnar, heldur virðist fólk oft hafa lagst í mikla rannsóknarvinnu til að rökstyðja mál sitt. En svo eru aðrir sem telja að bræðurnir hafi einfaldlega klúðrað þessu í lokin. „Ég held bara að satt að segja að þeir hafi alltaf viljað segja þessa sögu,“ segir Hilmar Smári. „En ef, svona í fantasíuheimi, samsæriskenningin er raunveruleg þá myndu þeir koma sér sögubækur fyrir að vera bestu höfundar allra tíma en ég held að það sé ekki að fara að gerast.“ „Þessi mistök hjá þeim eða ekki mistök, alla vega túlkun samfélagsins, þetta er búið að vera einhver besta ókeypis markaðssetning sem hefur verið gerð.“ Þættirnir enda á lagi Davids Bowie, Heroes. Bent hefur verið á að Heroes hafi heyrst tvisvar áður í þáttaröðinni, fyrst í seríu eitt þegar talið var að Will væri látinn, en síðar kom í ljós að hann var enn á lífi. Næst var það leikið þegar lögreglustjórinn Hopper virtist farast í sprengingu í lok þriðju seríu, en seinna kom í ljós að hann lifði af. Og svo núna í lok þessarar seríu. Þýðir það þá kannski að það sé heldur ekkert að marka þennan endi? Aðdáendur Stranger Things þáttaraðarinnar eru margir hverjir vægast sagt ósáttir við hvernig þættirnir enduðu. Sprottið hafa upp ýmsar kenningar, meðal annars um hvort endalokin séu raunveruleg. Heimskviður köfuðu í heim samsæriskenninga um þáttinn.