Dómsmálaráðherra segir ótímabært að segja hvort Helga Jenssyni, lögreglustjóra á Vestfjörðum, verði vikið frá störfum eftir að kvartað var undan hegðun hans á þorrablóti Flateyringa – Stútungi – fyrr í mánuðinum. Kvartanirnar sneru annars vegar að kynferðislegri áreitni og hins vegar að því að hann hefði ráðist líkamlega að manni á þorrablótinu. Samkvæmt kvörtun sem send var nefnd um eftirlit með lögreglu (NEL), og fréttastofa hefur undir höndum, vísaði Helgi minnst tvívegis til valds embættis síns. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir málið til skoðunar innan ráðuneytisins en vill að öðru leyti lítið gefa upp að svo stöddu. „Á meðan að málið er nýkomið og menn rétt farnir að glöggva sig á því þá er ekki mikið hægt að segja annað. En ég get staðfest það að þetta mál er til meðferðar,“ segir Þorbjörg Sigríður. Hefurðu áhyggjur af því að þetta hafi áhrif á traust fólks til lögreglunnar á Vestfjörðum? „Svona mál eru auðvitað aldrei góð en eins og ég segi, málið er í vinnslu og ég ætla ekki að segja mikið meira enda veit ég óskaplega lítið um málavexti.“ - Kemur til greina að viðkomandi lögreglustjóri fari í leyfi frá störfum? „Fyrst er að skoða hvernig í málinu liggur, hvað það var sem þarna gerðist, áður en einhverjar yfirlýsingar um það eru settar út,“ segir Þorbjörg Sigríður.