Tveir Álftnesingar inn fyrir leikinn gegn Litáen

Landsliðsþjálfarinn Craig Pedersen hefur gert tvær breytingar á leikmannahóp körfuboltalandsliðsins. Liðið mætir Litáen á mánudagskvöld en Ísland vann sögufrægan sigur gegn sama liði á föstudaginn. aHaukur Helgi Pálsson og Kári Jónsson detta út úr hópnum frá síðasta leik. Haukur ferðaðist með liðinu til Litáen en er meiddur. Kári á von á sínu fyrst barni á næstu dögum og ferðaðist því ekki til Litáen. Sigurður Pétursson og Ragnar Nathanaelsson koma inn í hópinn í þeirra stað. Þeir leika báðir með Álftanesi. Leikurinn byrjar klukkan 16:30 og er í beinni útsendingu á RÚV.