„Við erum með töluverð umsvif í Mið-Austurlöndum og fylgjum grannt með stöðunni núna eins og allir aðrir,“ segir Baldvin Már Hermannsson, forstjóri Air Atlanta, en flugfélagið er með átta flugvélar að jafnaði af nítján í flugi á svæðinu allan ársins hring í föstum verkefnum.