Það viðrar vel til skíðaiðkunar í dag – og fjöldi fólks hefur lagt leið sína í Bláfjöll í bliðviðrinu. Einar Bjarnason, rekstrarstjóri Bláfjalla, segir augljóst að fólk nýtir hvert tækifæri sem gefst til að skella sér í fjöllin eftir snjólítinn vetur. „Já, það er óhætt að segja það,“ segir hann. „Hér voru um 3300 manns í gær og við erum komin í 4500 í dag.“ „Það er náttúrlega miklu betra veður, það er búin að vera sól hérna í allan dag svo þetta er búinn að vera geggjaður dagur,“ segir Einar. Umferðateppa myndaðist í kringum svæðið vegna aðsóknar. Einar segir hana þó hafa verið nokkuð fljóta að leysast. Það viðrar vel til skíðaiðkunar í dag og fjöldi fólks hefur lagt leið sína í Bláfjöll í bliðviðrinu. Rekstrarstjóri Bláfjalla segir að skíðað hafi verið í öllum hlíðum fjallsins þrátt fyrir að snjóbreiðan væri grunn. Hann vorkennir skíðum landsmanna. Stutt í grjótið sem er ekki gott fyrir skíðin Útlitið var svart í janúar á skíðasvæðinu þegar meira sást í jörð en snjó. „Við getum allavega sagt að þetta líti vel út,“ segir EInar sem tekur fram að ekki sé djúp snjóbreiða sem hafi sest yfir jörðina og stutt sé í grjótið fyrir meðan „Ef maður horfir yfir brekkurnar, þá er búið að skíða alls staðar,“ segir Einar. „Aumingja skíðin, þau hljóta að vera illa farin,“ segir Einar.