„Sumir fara í Húsdýragarðinn til að klappa dýrunum. Við garnáhugafólk förum á Garnival til að klappa trefjunum hér,“ segir Áslaug Eiríksdóttir, sirkusstjóri á Garnival-hátíðinni. Vel á annað þúsund voru saman komin í íþróttahúsi Hauka í Hafnarfirði en hátíðin hefur verið haldin í fjórða skiptið þetta árið. Yfir 46 sölubásar voru á hátíðinni í þetta skiptið en Áslaug segir að þrátt fyrir það hafi færri komist að en vildu. Hátíðin var stofnuð af sex vinkonum sem eru saman í prjónaklúbb. „Garnið er í fókus og forgrunni og ekki tilbúnar vörur úr garni heldur það sem við kaupum til að búa vörurnar til,“ segir Áslaug.