Piero Hincapie skallar boltann eftir hornspyrnu Chelsea.EPA Arsenal vann Chelsea 2-1 í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta. Öll mörkin þrjú komu eftir hornspyrnur. William Saliba kom heimamönnum í Arsenal yfir á 21. mínútu. Piero Hincapie setti boltann í eigið net í uppbótartíma fyrri hálfleiks eftir hornspyrnu Reece James. Jurrien Timber kom Arsenal svo yfir á 66. mínútu eftir hornspyrnu Declan Rice. Pedro Neto fékk reisupassann á 70. mínútu er hann fékk sitt annað gula spjald. Liam Delap skoraði í uppbótartíma en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Arsenal er enn í efsta sæti með fimm stiga forskot á Manchester City. Chelsea er í 6. sæti með 45 stig.