Allt samband við fjölskyldu og vini í Íran verið rofið

Marzieh Amiri hefur búið á Íslandi í um þrjú ár og lokið MA í myndlist frá Listaháskóla Íslands. Hún segir fregnir frá heimalandinu vekja ótta um fjölskyldu og vini í Íran en á sama tíma vekja von. Þó svo að tilhugsunin um stríð í heimalandinu sé ógnvekjandi telur hún innrásina hafa verið nauðsynlega, til að koma klerkastjórninni frá. „Ég held að núna sé tíminn til að losa okkur við þessi grimmu stjórnvöld,“ segir Marzieh. Íranir á Íslandi fögnuðu í gær þegar fregnir bárust af falli Khameinis. Marzieh segist ekki vita hver viðbrögðin voru í heimalandinu, fyrir utan það sem hún hefur lesið eða séð í fréttum. „Þeir lokuðu internetinu, lokuðu fyrir símann, við náum ekki í þau, þannig að auðvitað er ég áhyggjufull,“ segir Marzieh.