FH vann tvöfalt á Meistaramóti Íslands

FH vann stigakeppni Meistaramóts Íslands í frjálsum íþróttum í karla- og kvennaflokki í dag. Svona endaði stigakeppni í kvennaflokki FH - 31 stig ÍR - 27 stig Fjölnir - 12 stig Svona endaði stigakeppni í karlaflokki FH - 21 stig ÍR - 18 stig Fjölnir - 11 stig Eir, Erna og Irma báru af í dag Erna Sóley Gunnarsdóttir vann keppni í kúluvarpi kvenna og kastaði lengst 17,09. Það er hennar lengsta kast á tímabilinu en Erna sagði í viðtali eiga meira inni. Hún hefur kastað lengra á æfingum og stefnir hátt á utanhússtímabilinu sem fram undan er. Hér að neðan má sjá myndefni frá helginni auk viðtala við Irmu Gunnarsdóttur og Ernu. FH vann í karla- og kvennaflokki í stigakeppni á Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum. Eir Chang Hlésdóttir varð Íslandsmeistari í 200 metra hlaupi en hún hljóp á 24,11 sekúndum. Það er örlítið frá Íslandsmeti hennar sem hún setti nýverið og er 23,54 sekúndur. Íslandsmethafinn í þrístökki, Irma Gunnarsdóttir, varð Íslandsmeistari með besta stökki sínu á tímabilinu til þessa, það var 13,23 metrar. Kúluvarp kvenna sæti: Erna Sóley Gunnarsdóttir (ÍR) - 17,09 m sæti: Hera Christensen (FH) - 13,62 m sæti: Ísold Sævarsdóttir (FH) - 12,80 m (Persónulegt met) Þrístökk kvenna sæti: Irma Gunnarsdóttir (FH) - 13,23 m sæti: Katrín Mary Magnúsdóttir (ÍR) - 11,49 m sæti: Anna Metta Óskarsdóttir (Selfoss) - 11,33 m 200m hlaup kvenna sæti: Eir Chang Hlésdóttir (ÍR) - 24,11 sek sæti: Ísold Sævarsdóttir (FH) - 25,18 sek sæti: María Rún Gunnlaugsdóttir (ÍR) - 25,39 sek Þrístökk karla sæti: Guðjón Dunbar Diaquoi Þorsteinsson (Fjölnir) - 14,04 m sæti: Veigar Þór Víðisson (Selfoss) - 12,25 m (Persónulegt met) sæti: Daníel Smári Björnsson (Selfoss) - 11,92 m (Persónulegt met) 200m hlaup karla sæti: Kristófer Þorgrímsson (FH) - 22,20 sek sæti: Ívar Kristinn Jasonarson (ÍR) - 22,22 sek sæti: Gabríel Glói Freysson (UFA) - 22,40 sek Hástökk karla sæti: Brynjar Páll Jóhannsson (UFA) - 1,90 m (Persónulegt met) sæti: Jacques R. S Borges Schmitt (Breiðablik) - 1,80 m (Persónulegt met) sæti: Ægir Örn Kristjánsson (Breiðablik) - 1,80 m (Persónulegt met) Stangarstökk kvenna sæti: Hanna María Petersdóttir (Fjölnir) - 3,23 m sæti: Katrín Tinna Pétursdóttir (Fjölnir) - 3,23 m (Persónulegt met) sæti: Edith Anna Theodórsdóttir (Ármann) - 3,13 m (Persónulegt met) 800m hlaup kvenna sæti: Elín Sóley Sigurbjörnsdóttir (ÍR) - 2:24,37 sæti: Íris Dóra Snorradóttir (FH) - 2:24,87 sæti: Vilhelmína Þór Óskarsdóttir (Fjölnir) - 2:28,24 800m hlaup kvenna sæti: Leó Örn Þórarinsdóttir (FH) - 1:55,92 sæti: Fjölnir Brynjarsson (FH) - 1:56,40 sæti: Patrekur Ómar Haraldsson - 1:57,56 (Persónulegt met) 60m grindarhlaup kvenna sæti: Ísold Sævarsdóttir (FH) - 8,63 sek (Persónulegt met) sæti: Glódís Edda Þuríðardóttir (KFA) - 8,70 sek sæti: María Rún Gunnlaugsdóttir (ÍR) - 8,77 sek 60m grindarhlaup karla sæti: Ívar Ylur Birkisson (Selfoss) - 8,45 sek (Persónulegt met) sæti: Ívar Kristinn Jasonarson (ÍR) - 8,52 sek sæti: Jörundur Þór Hákonarson (Ármann) - 9,54 sek 4x200m boðhlaup kvenna sæti: ÍR - 1:42,99 sæti: Fjölnir - 1:47,44 sæti: FH - 1:51,33 4x200m boðhlaup karla sæti: ÍR - 1:30,99 sæti: Fjölnir - 1:31,49 sæti: FH - 1:32,06 3000m hlaup kvenna sæti: Íris Anna Skúladóttir (FH) - 10:11,85 sæti: Fríða Rún Þórðardóttir (ÍR) - 11:14,13 3000m hlaup karla sæti: Arnar Pétursson (Breiðablik) - 8:45,98 sæti: Jökull Bjarkason (ÍR) - 8:49,89 (Persónulegt met) sæti: Stefán Pálsson (Ármann) - 8:50,97 (Persónulegt met)