Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Bandaríkin ekki munu hætta hernaðaraðgerðum sínum í Íran fyrr en hverju einasta markmiði sé náð. Hann kveðst eiga von á frekara mannfalli innan raða Bandaríkjahers en heitir því að hefna hinna föllnu og segir klerkastjórnina heyja stríð við siðmenninguna.