Abby Beeman átti stórleik fyrir Grindavík í kvöld. Hún var með 26 stig, 14 fráköst og níu stoðsendingar. ERÚV / Mummi Lú Toppbaráttan í efstu deild kvenna í körfubolta er afar hörð. Fjögur lið eru jöfn í öðru til fjórða sæti og eru einungis tveimur stigum á eftir toppliði Njarðvíkur. Njarðvík er með 26 stig en KR, Valur, Haukar og Grindavík eru öll jöfn með 24 stig. Grindavík vann 98-87 sigur á KR í kvöld. Haukar unnu sterkan 85-59 sigur gegn Val.