Lögreglan við störf á vettvangi í Austin, Texas.AP/FR172290 AP / Jack Myer Tveir eru látnir og að minnsta kosti 14 eru særðir, þar af þrír alvarlega, eftir skotárás á bar í Austin, Texas í Bandaríkjunum í gær. Maðurinn kom keyrandi á bíl og hóf skothríð úr bíl sínum á fólk sem stóð fyrir utan barinn. Því næst lagði hann bílnum og fór með riffil og gekk að barnum. Hann var síðan skotinn af lögreglumönnum. Ekki er vitað um ástæður árásarinnar en Alríkislögregla Bandaríkjanna, FBI, telur að árásin sé mögulega hryðjuverk.. Árásarmaðurinn er sagður hafa tjáð fyrirlitningu sína á Bandaríkjunum og Ísrael og var klæddur í bol sem á stóð, eign Allah. Árásarmaðurinn var bandarískur ríkisborgari fæddur í Senegal.