Heimsmarkaðsverð á olíu hefur snarhækkað

Heimsmarkaðsverð á olíu hefur snarhækkað um helgina eftir að Bandaríkin og Ísrael hófu árásir á Íran að morgni laugardags. Verð á tunnu af Brent-hráolíu hafði hækkað um 13% þegar markaðir opnuðu í Asíu að morgni mánudags að staðartíma, frá því á föstudaginn þegar markaðir lokuðu. Búist er við að verð á gasi eigi líka eftir að hækka, en Katar er einn helsti útflytjandinn á fljótandi gasi. Danska skipaflutningafyrirtækið Maersk tilkynnti í gær að það hafi stöðvað alla flutninga að svo komnu um Súesskurðinn og Hormússund vegna átakanna í Mið-Austurlöndum. Að minnsta kosti þrjú flutningaskip urðu fyrir árásum nærri Hormússundi við Persaflóa í gær. Íranski byltingarvörðurinn hefur varað við öllum samgöngum og flutningum um sundið. Hormússundið er mjótt sund sem liggur milli Persaflóa og Ómanflóa. Það er um það bil 39 km á breidd og tengir þessa mikilvægu sjóleið milli Mið-Austurlanda og Suðaustur-Asíu. Um fjórðungur allra olíuflutninga á hafi í heiminum og fimmtungur alls fljótandi náttúrugass er fluttur um sundið. Hvers kyns truflun á flutningum hefur mikil áhrif á framboð á olíu og gasi í heiminum og þar með verð á þessum orkugjöfum.