Björgunarfélag Akraness fær nýtt björgunarskip

Björgunarfélag Akraness hefur fengið afhent björgunarskipið Gísla Jóns af Björgunarbátasjóði Vestfjarða. Í frétt Björgunarfélags Akraness um skipið, segir að björgunarskipið Gísli Jóns hafi komið til Ísafjarðar árið 2019 frá Noregi. Á Ísafirði var björgunarskipið nýtt til að sinna fjölda útkalla og oft og tíðum krefjandi og erfiðum björgunarverkefnum. Skipið var fremst í flokki öflugra björgunarskipa á Vestfjörðum og þegar nýtt björgunarskip, Guðmundur í Tungu, bættist í flota björgunarskipa á Ísafirði þá var Gísli Jóns laus til nýrra verkefna. Björgunarfélag Akraness fjármagnaði kaupin á Gísla Jóns með ýmsum hætti en félagið er ekki inni í björgunarskipahópi Slysavarnafélagsins Landsbjargar og nýtur þar með ekki ríkisstuðnings. Félag sjómanna á Akranesi ásamt sveitarfélögunum, Akranesbæ og Hvalfjarðarsveit, hafa samþykkt að styðja við verkefnið og einnig hafa fyrirtæki og einstaklingar lagt verkefninu lið. Þá hyggur Björgunarfélag Akranes á áframhaldandi fjársöfnun fyrir kaupum og rekstri björgunarskipsins. Í dag eru um 10 skipstjórar í björgunarfélaginu sem hafa full réttindi til þess að stjórna skipi á stærð við Gísla Jóns og þá eru fimm félagar í námi til skipstjórnarréttinda. Töluverð eftirvænting er hjá félögum í björgunarfélaginu yfir komu skipsins enda næg verkefni og þjálfun fram undan. Skipið hefur ekki enn fengið nýtt nafn en það verður kynnt síðar.