„Það er eins og við séum í smá hjónabandi. Við erum mjög nánar og búnar að spila mikið saman,“ segir Björk Níelsdóttir sópransöngkona um Þóru Margréti Sveinsdóttur víóluleikara. Saman mynda þær tvíeykið Dúplum Dúó en þær eru einnig hluti af kammersveitinni Cauda Collective. „Við vorum vinir fyrst og svo þurftum við að læra að vera kollegar líka, það tók smá tíma.“ Þær stöllur halda tónleika í Salnum á sunnudaginn sem kallast Hugleiðingar um jökulvatn og ást og gefa út plötu á næstu dögum ásamt Cauda Collective. Sigurlaug Margrét Jónasdóttir ræddi við þær Björk og Þóru í Segðu mér á Rás 1. Fyrir fram ákveðið hjónaband Björk og Þóra kynntust í tónlistarháskólanum í Amsterdam fyrir rúmum áratugi. Þóra hafði þá ferðast með Sigur Rós þar sem hún frétti af Björk. „Allar vinkonur Bjarkar voru með mér á þessum túr og þær töluðu svo vel um hana. Þær sögðu að það biði mín vinkona í Amsterdam þegar ég kæmi.“ Það gekk eftir því fljótlega eftir að skólinn byrjaði kom Björk upp að Þóru og sagði: „Þú ert Þóra.“ „Það var líka búið að segja mér að ég ætti að eignast vinkonu í haust. Þetta var svona hjónaband sem var fyrir fram ákveðið,“ útskýrir Björk. Þá voru þær báðar að hefja meistaranám en Björk hafði búið í Amsterdam í nokkur ár þar á undan. Telur alla sem fara erlendis í tónlistarnám lenda einhvern tíma á vegg „Ég verð að vera alveg hreinskilin, mér leið ekkert sérstaklega vel þarna,“ segir Þóra. „Þetta voru rosalega stórir bekkir og samkeppni sem ég þoli ekki. Maður þarf samstöðu innan hópsins.“ Eftir ár skipti Þóra yfir í skóla í Den Haag og leið mun betur þar. Þar fann hún samstöðuna sem hún leitaði að og kláraði námið þar. Björk tekur undir þessa lýsingu Þóru á skólanum en segist þó hafa þrjóskast í gegnum námið. „Þetta var alveg pínu harkalegt en ég held að allir sem fara í tónlistarháskóla úti lendi einhvern tímann á vegg. Það getur alveg stundum verið svolítið harkalegt en það er bara partur af þessu einhvern veginn, að keyra í gegn.“ Þóra segist hafa haldið að lífið yrði eins og það var í tónlistarháskólanum. Að maður þyrfti að æfa sig í átta tíma á dag og vera með allt í gangi í einu. „En svo er tónlistarlífið ekkert endilega þannig. Maður getur líka búið til sín eigin verkefni og unnið með fólki sem manni þykir vænt um. Þegar maður er að æfa verkin sem mann langar til að æfa og miðla tónlist til fólks sem maður trúir á, þá líður manni vel.“ „Það er ekkert stressandi að vera á sviðinu því maður veit hvað maður ætlar að segja.“ Rosalega dramatískt og fyndið, alveg eins og góðar sögur eiga að vera Þóra býr enn í Amsterdam og er sjálfstætt starfandi víóluleikari. „Ég kem samt mikið til Íslands því ég er með þessar tvær grúppur: Dúplum Dúó og Cauda Collective. Við erum búnar að vera svolítið öflugar núna að taka upp tónlist og láta tónskáld skrifa fyrir okkur nýtt.“ Á sunnudaginn flytja þær hugleiðingar um jökulvatn og ást og fá í lið með sér CAPUT Ensamble sem þær segjast mjög heppnar með. Verkið er lagaflokkur eftir Hróðmar I. Sigurbjörnsson sem byggist á ljóðabók Ingunnar Snædal, Guðlausir menn, hugleiðingar um jökulvatn og ást frá árinu 2006. „Þetta er ferðalag konu frá Reykjavík austur á land þar sem hún er að fara í jarðarför ömmu sinnar. Svo komumst við að því hvað er í gangi í lífi hennar á leiðinni.“ „Þetta er smá eins og ópera. Þetta er rosalega dramatískt en líka alveg ógeðslega fyndið, svona eins og allar sögur eiga að vera,“ segir Björk. Það sé mikil von þrátt fyrir að allt virðist ömurlegt á ákveðnum tímapunkti. Konunni er fylgt eftir í hversdagsleikanum þar sem segir frá ýmsu; dauðanum, fjölskyldunni, ástarsambandi í dauðateygjunum og sögum frá heimahöfunum. Allt þetta kallast á við nýja og forboðna ást. „Þessi kona er svo mikið að berjast við sjálfa sig og samfélagið, fyrir því að hennar eigin tilfinningar eigi rétt á sér. Eins og þegar hjónabandið splundrast, hvernig heldur maður áfram? Þeim finnst báðum verk Hróðmars virkilega flott. Það hafi upphaflega verið skrifað fyrir þær tvær, rödd og víólu, árið 2018 þegar þær fluttu það í Skálholti. Það hafi tekist mjög vel.„Núna verður þetta enn þá betra, það er búið að bæta við hljóðfærum og lyfta okkur upp á pall og ég hlakka ekkert smá til,“ segir Þóra. RÚV tekur upp tónleikana. Sú tilfinningaríka og sú jarðbundna passa vel saman Björk segist vera mikil tilfinningavera og á því auðvelt með að koma með ljóðrænar og fallegar lýsingar á verkum þeirra. „Við erum að fylgjast með ferðalagi konu að frelsinu,“ segir hún um tónleikana. „En guði sé lof fyrir Þóru því hún er með ræturnar djúpt í jörðinni.“ „Þess vegna pössum við svona vel saman. Þegar við erum að skrifa umsóknir þá er ég búin að skrifa einhvern dauðleiðinlegan texta og svo kemur Björk og segir eina setningu sem rammar allt inn og gerir það fallegt,“ segir Þóra. „Það var búið að segja mér að ég ætti að eignast vinkonu í haust,“ segir Björk sópransöngkona um kynni hennar og Þóru víóluleikara. Þeim tókst fljótt vel til vina og hafa starfað saman í um áratug. Þær halda tónleika í Salnum um helgina. Þær hafa gefið út tvær plötur saman sem Dúplum Dúó sem kallast Flowers of Evil og Allt er ömurlegt. Sú seinni byggir á dagbókarskrifum Bjarkar frá því í menntaskóla. Bíður eftir tilfinningunni að vilja aftur heim Þóra býr enn í Amsterdam en Björk er flutt heim. Henni þótti mjög gaman að búa úti en einnig erfitt þar sem hún starfaði sjálfstætt, þurfti að hlaupa á milli verkefna og ferðaðist mikið á tónleikaferðum. „Ég bjó sjálf í rauða hverfinu, það var ógeðslega gaman og intense líka. Þetta var svona hálfgert bóhem líf – og er það svo sem alveg enn þá þegar ég bý í miðbæ Reykjavíkur sem er stórt skref fyrir Hafnfirðing.“ Hún segist ekki vita hvers vegna hún hafi viljað flytja aftur heim en fann bara einn daginn að það væri kominn tími til. „En ég er enn þá að skjótast fram og til baka.“ Þóra segist ekki enn hafa fundið þá tilfinningu. „Ég bíð eftir henni samt. Mér finnst ég vera ein eftir, það eru allir farnir. Það var stór hópur af Íslendingum. Ég veit ekki hvað er að mér, maður er alltaf í einhverjum verkefnum og það kemur alltaf eitthvað nýtt. Það er enn þá spennandi að vera úti.“ Hún segist vera upptekin í sínu og svo eigi hún rúmlega tveggja ára son sem er kominn í leikskóla og eigi vini. „Maður er bara kominn í rútínu, ég er með mann og barn úti.“ Hún kynntist manninum sínum, Felix, í námi árið 2011 þegar hún lærði tónlist og hann viðskiptafræði. Hann er þýskur og starfar fyrir Reddit og selur náttúruvín. Þóra segir það passa svolítið að hann sé ekki í músíkinni. „Sérstaklega með barn. Hann er bara í vinnunni til fimm og ég er alltaf að vesenast um helgar og á kvöldin. Það er engin amma og afi nálægt til að hjálpa okkur. Við erum bara tvö ein í þessu. Reyndar erum við búin að finna íslenska barnapíu sem bjargar okkur alveg.“ Enn að læra að vera Íslendingur Björk flutti heim fyrir tæpum þremur árum og segist enn vera að læra að vera Íslendingur. „Maður fór út þegar maður var tvítugur. Mér finnst þetta svo klikkað, að vera flutt heim. Ég fór að styrkja Worldclass og þá hugsaði ég með mér: Er þetta núna komið?“ Hún segir að hraðinn sé mun meiri á Íslandi en í Amsterdam. „Það eru allir svo víraðir, það er geggjað skemmtilegt. Ég drekk þrjá kaffibolla á dag en Þóra drekkur yfirleitt bara koffínlaust kaffi.“ Í næstu viku er von á plötu með Caudu Collective sem ber heitið Solastalgia. „Það var búið að segja mér að ég ætti að eignast vinkonu í haust,“ segir Björk sópransöngkona um kynni hennar og Þóru víóluleikara. Þeim tókst fljótt vel til vina og hafa starfað saman í um áratug. Þær halda tónleika í Salnum um helgina. Rætt var við Björk Níelsdóttur og Þóru Margréti Sveinsdóttur í Segðu mér á Rás 1. Þáttinn má finna í spilaranum hér fyrir ofan.