Nýliðinn Birta Georgsdóttir er spennt fyrir komandi viðureign gegn Spáni. Hún var í fyrsta sinn valin í kvennalandsliðið í fótbolta. Verkefnin verða varla stærri en liðið mætir Englandi og Spáni ytra í fyrstu leikjum sínum í undankeppni HM 2027 sem fer fram í Brasilíu. Birta Georgsdóttir og Elín Helena Karlsdóttir eru nýliðar í hópnum en þær urðu Íslands- og bikarmeistarar með Breiðablik síðasta sumar. Birta var valin sú besta í Besta deildinni á síðasta ári er hún skoraði átján mörk. Hún var seld til Genúa í efstu deild Ítalíu og skoraði í fyrsta leik sínum þar. „Það er ótrúlega spennandi að vera kölluð inn. Að vera að keppa á móti heims- og Evrópumeisturum. Þetta gerist ekki mikið stærra. En á sama tíma er það ótrúlega skemmtilegt að fá að upplifa þetta. Að hafa spilað á móti svona sterkum leikmönnum. Þannig ég er mjög spennt fyrir leikjunum,“ sagði Birta. Nýliðinn Birta Georgsdóttir er klár í slaginn gegn Spánverjum. Íslenska landsliðið í fótbolta mætir þessu besta liði heims í fyrsta leik sínum í undankeppni HM 2027. Hún segist ekkert hafa rætt um hlutverk sitt við Þorstein en er klár ef kallið kemur. „Nei, ekkert þannig. Ef það kemur þá verður það bara frábært. En ég er mjög róleg. Ef að kallið kemur þá verð ég tilbúin.“ Þurfa að elska að verjast Þrátt fyrir lið Spánverja sé ógnarsterkt segir Birta góða möguleika í stöðunni. Hún segir lykilatriði að stelpurnar verði að elska að verjast. „Við erum búnar að fara mikið í okkar leikskipulag síðustu daga. Með því að vera þéttar og þolinmóðar og elska að verjast. Svo erum við líka búnar að skoða möguleika fram á við. Við komum fullar af sjálftrausti inn í leikina og vonandi náum við í einhver úrslit.“ Ísland mætir Spáni þriðjudaginn 3. mars og Englandi laugardaginn 7. mars. RÚV sýnir báða leikina.