Stórhríð setur mark sitt á samgöngur á austanverðu landinu, gular viðvaranir tóku gildi í morgun og appelsínugular viðvaranir hafa verið gefnar út frá eitt á Norðausturlandi og Austurlandi. Vegir eru lokaðir um Mývatns- og Möðrudalsöræfi og Vopnafjarðarheiði auk þess sem þæfingsfærði með skafrenningi eða snjókomu er með ströndinni milli Raufarhafnar og Vopnafjarðar. Snjóþekja er á flestum leiðum á Norðausturlandi. Viðbúið er að fleiri vegir geti lokast með skömmum fyrirvara. Vegirnir um Fjarðarheiði og Fagradal eru lokaðir. Ófært er um Vatnsskarð eystra, Öxl og Breiðdalsheiði. Snjóþekja eða hálka er á flestum vegum og búast má við að fleiri vegir geti lokast með skömmum fyrirvara. Veðurfræðingur Vegagerðarinnar birti þessa ábendingu rétt fyrir klukkan níu. „Norðvestan stórhríð á norðaustanverðu landinu í dag með tilheyrandi þæfingi eða ófærð á fjallvegum, t.d. Möðrudalsöræfum, Fagradal og Fjarðarheiði. Einnig snarpar vindhviður við fjöll, yfir 45 m/s, á sunnanverðum Austfjörðum og austur af Öræfum og búast má við sandfoki á köflum. Lægir og styttir upp í nótt.“