Íslendingur í Barein: „Þetta er bara skelfilegt“

Íslensk kona sem er búsett í Barein segir ástandið þar undanfarna sólarhringa hafa verið skelfilegt. Íranir hafi ráðist á flotastöð sem er í hálftíma fjarlægð frá henni og búið sé að loka flugvellinum. Yfirvöld ráðleggi íbúum að halda sig inni. Herir Bandaríkjanna og Ísraels hófu loftárásir á Íran á laugardagsmorgun um klukkan sex að íslenskum tíma. Árásunum var aðallega beint að Teheran, höfuðborg landsins, en einnig á borgirnar Karaj, Kermanshah, Qom og Isfahan. Stjórnvöld í Íran hafa svarað árásunum með flugskeytum að Ísrael og bandarískum herstöðvum í nágrannaríkjum. Ísraelar sögðu í nótt að Hezbollah-hreyfingin hefði gert hefndarárásir á Ísrael vegna falls Ali Khameini, æðsta klerks í Íran, og gerðu á móti stórfelldar árásir í Líbanon. Íranir hafa líka gert árásir á borgir við Persaflóa, svo sem Dúbaí, Doha og Manama. „Sérstakt ástand“ „Þetta er náttúrulega búið að vera mjög sérstakt ástand. Það eru sírenur. Síðustu 48 tíma er þetta á tveggja tíma fresti og mér skilst að varnarkerfið sé búið að skjóta niður 69 eldflaugar og 36 dróna,“ segir Guðlaug Ólöf Sigfúsdóttir, sem hefur verið búsett í eyríkinu Barein í fjórtán ár. Guðlaug ræddi stöðuna sem uppi er í Miðausturlöndum í Morgunútvarpinu á Rás 2. Enginn á ferð og allt lokað Guðlaug segir stjórnvöld í landinu ráðleggja íbúum að halda sig inni. Enginn sé á ferð og allt lokað. „Það er búið að loka brúm og meira að segja milli eyja, því Barein eru nokkrar eyjur. Og það er búið að loka þeim. Það er bara allt lokað. Við getum ekki gert neitt. Við komumst ekki neitt.“ Guðlaug býr í nálægð við vegbrú sem tengir Barein við Sádi-Arabíu sem hefur verið lokað vegna ástandsins. Hún segist finna fyrir ótta. Íranir hafi ráðist á flotastöð sem er einungis í hálftíma í burtu frá heimili hennar. „Svo réðust þeir á byggingu þar sem þeir vissu að væru einhverjir Bandaríkjamenn, þannig að þeir eru í raun að ráðast á þá. Þannig að við höldum að við séum í lagi. En að heyra í sírenunum og í sprengjunum og þetta... þetta er bara skelfilegt. Þetta er ógeðslegt, maður er með hjartað í buxunum.“ Guðlaug segist óviss hvort og þá hvernig hún gæti komist úr landi. Flugvellinum hafi verið lokað. „Við erum átta Íslendingar hér í Barein og flugvöllurinn er lokaður þannig við komumst ekki í flug. Þeir voru að segja áðan að það væri búið að opna brúna til Sádi-Arabíu, þannig við gætum farið þangað. En okkur er ekki ráðlagt það því brúin til Sádi gæti líka verið skotmark. Þannig við þurfum að bíða og sjá.“ Þá viti borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins af þeim. Vel upplýst um stöðu mála Guðlaug segir fjölmiðlaumfjöllun þar ytra góða. Fréttirnar sem berast varðandi árásirnar séu áreiðanlegar og því séu þau vel upplýst um stöðu mála. Guðlaug segir alls óvíst hversu lengi þau þurfi að vera inni og hvenær þau geti náð sér í vistir. „Eins og þeir segja núna, þá á þetta bara eftir að versna því að sjálfsögðu ræðst Íran á okkur þar sem við erum með næststærstu flotastöðina í Miðausturlöndum. Þannig að þeir segja að þeir ætli bara að halda þessu áfram. Það verður ekkert búið á næstu klukkutímum.“ Lítið hafi verið um svefn síðustu nætur. „Ég náði þremur tímum. Ekki í röð, heldur klukkutíma og klukkutíma af því það var mjög mikið í gangi í nótt. Svo heyrum við líka þegar Katar er að stoppa sprengjurnar til þeirra, því við erum nálægt þeim. Þó svo að við fáum ekki sírenur heyrum við.“ Væri gott að komast heim Guðlaug segir að hingað til hafi hún upplifað sig örugga í Barein. „Barein er frjálsasta Miðausturlandið. Þú mátt gera allt hérna. Þetta eru í raun búin að vera yndisleg fjórtán ár hérna.“ Ástandið sé því algjör viðsnúningur. „Þetta er svo „absúrd“ að maður veit ekki alveg hvernig maður á að haga sér.“ Hún segist vera í góðu sambandi við hina Íslendingana á svæðinu. Þau séu öll á sama stað. „En við erum ekki örugg. Það væri bara gott að komast heim eins og staðan er núna, en við sjáum hvað gerist.“ Íslensk kona sem býr í Barein segir ástandið þar undanfarna sólarhringa skelfilegt. Íranir hafi ráðist á flotastöð sem er í hálftíma fjarlægð frá henni og búið sé að loka flugvellinum. Sírenuvæl sé á tveggja tíma fresti sem haldi fyrir þeim vöku.