Hring­vegurinn lík­lega lokaður til morguns

Skólahaldi var aflýst í tveimur skólum í Múlaþingi í morgun vegna veðurs og þá loka skólar í Fjarðabyggð á hádegi. Hringveginum um Mývatn og Möðrudalsöræfi var lokað í morgun og ekki er búist við að hann opni á ný fyrr en í fyrramálið.