Bandaríkin ætla að senda sjúkraskip til Grænlands, segir erindreki Bandaríkjanna, þrátt fyrir að dönsk og grænlensk stjórnvöld hafi afþakkað heilbrigðisþjónustu. Sérfræðingar segja að skipið myndi skapa fleiri vandamál en það myndi leysa. Bandaríkjaforseti sagði fyrir rúmri viku að sjúkraskip væri á leið til Grænlands til að sinna bágstöddum. Hann sagði að skipinu væri ætlað að tryggja heilbrigðisþjónusu fyrir „fjölda fólks sem liggur sjúkt án aðhlynningar“, eins og hann orðaði það. „Það er á leiðinni!!!“ Dönsk og grænlensk stjórnvöld afþökkuðu þetta, því lögum samkvæmt eiga allir Grænlendingar rétt á gjaldfrjálsri heilbrigðisþjónustu. Jeff Landry, erindreki Bandaríkjanna, furðaði sig á viðbrögðum þeirra; og sagði Jens Frederik-Nielsen, formanni landstjórnar Grænlands, að skammast sín, í færslu sem hann birti á X . „Heilbrigt Grænland er nauðsynlegt fyrir þjóðaröryggi Bandaríkjanna.“ Landry sagði grænlenska ríkisútvarpinu KNR að skipið væri ekki á leiðinni, því hafís væri of mikill. Hins vegar væri Bandaríkjastjórn staðráðin í að standa við orð forsetans. Þörfin væri mikil, ekki síst fyrir fólk í afskekktum byggðum. Hann ætli að vera „mjög aggresívur“ til að tryggja þeim heilbrigðisþjónustu. Bandaríkin eru staðráðin í að senda sjúkraskip til Grænlands þrátt fyrir að dönsk og grænlensk stjórnvöld hafa afþakkað heilbrigðisaðstoð. Sérfræðingar telja að skipið myndi skapa fleiri vandamál en það myndi leysa. Grænlensk stjórnvöld segja heilbrigðiskerfið ekki vera án áskorana, til dæmis manneklu og aðgengis að þjónustu á afskekktum stöðum. Suma þjónustu er ekki hægt að veita á Grænlandi og er sjúklingum í þeim tilfellum flogið til Danmerkur þeim að kostnaðarlausu. KNR ræddi einnig við sérfræðinga sem telja að bandarískt sjúkraskip myndi skapa fleiri vandamál en það myndi leysa og að hugmyndin sé slæm og óraunhæf. Kjeld Møller Pedersen hagfræðiprófessor segir grænlenska heilbrigðiskerfið ekki vera án áskorana en að enginn sé án nauðsynlegrar heilbrigðisþjónustu. Hann telur að sjúkraskipið gæti aukið áhættu við skurðaðgerðir, flækt samræmingu sjúkragagna og sjúklingar gætu fengið uppáskrifuð lyf sem eru hvorki fáanleg né lögleg á Grænlandi. „Galin hugmynd“ Skipið gæti hvergi komið til hafnar nema í höfuðborginni Nuuk, segir Hans Otto Holmegaard Kristensen, sérfræðingur með tuttugu ára reynslu af sjúkraskipum. Því myndi það ekki nýtast fólki í afskekktum byggðum. Hann segir einnig vera hættu á að skipið rekist á hafís og vísar í Titanic, sem sökk árið 1912, þegar hann ræðir mögulegar afleiðingar þess. Hugmyndin sé galin og engin raunhæf leið sé til að framkvæma hana.