Karlmaður á sjötugsaldri hefur verið sýknaður af ákæru fyrir brot í nánu sambandi með því að hafa tekið þáverandi sambýliskonu sína og barnsmóður hálstaki. Sannað þótti að hann hefði tekið konuna hálstaki en brot hans heimfært undir ákvæði hegningarlaga um minni háttar líkamsárás og hann því sýknaður vegna fyrningar brotsins.