Þórey Anna Ásgeirsdóttir hefur dregið sig út úr landsliðshópi kvennalandsliðsins í handbolta fyrir komandi leiki gegn Svartfjallalandi í undankeppni EM 2026. Þórey Anna er ólétt og leikur ekki handbolta meira á næstunni. Sonja Lind Sigsteinsdóttir, leikmaður Hauka, kemur í hennar stað. Þórey Anna varð bikarmeistari með Val á laugardag og það var lokaleikur hennar í bili. Hún á 55 A-landsleiki að baki og mörkin eru 90. Ísland mætir Svartfjallalandi á Ásvöllum á miðvikudag og svo ytra á sunnudag. Fyrri leikurinn er sýndur beint á RÚV 2 og sá síðari á RÚV. Ísland er neðst í undanriðlinum og mætir Færeyjum og Portúgal í lokaleikjunum í apríl. Þórey Anna ÁsgeirsdóttirImago