„Get þá í versta falli skriðið heim“

Það er ekkert ferðaveður um landið austanvert, segir Þorsteinn V. Jónsson veðurfræðingur um óveðrið sem gengur yfir á Austurlandi, Austfjörðum, Suðausturlandi og Norðausturlandi. Víða er orðið bálhvasst og veðrið nær ekki hámarki fyrr en seinnipartinn, segir hann. „Það á enn eftir að bæta í fyrir austan virðist vera og þetta á eftir að standa langt fram eftir kvöldi. Það fer varla að draga neitt úr veðurhæðinni fyrr en eftir tíu, ellefu í kvöld og verður jafnvel hvasst fram á nóttina.“ Misjafnt er hvernig skólahaldi hefur verið háttað. Skólum hefur verið lokað í Vopnafirði og Fjarðabyggð og leikskóla á Djúpavogi var lokað í hádeginu. Skólahald í Brúarási var fellt niður og sömuleiðis skólaakstur í dreifbýli. Börn á Egilsstöðum mættu í skólann í morgun. Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri í Múlaþingi, sagði í hádegisfréttum RÚV að gripið yrði til að ráðstafana ef á þyrfti að halda. Hún sagði að foreldrar væru viðbúnir því að geta þurft að sækja börn sín. Enn gæti átt eftir að bæta í veður. „Ef það versnar þá er ég með kuldagallann í bílnum og get þá í versta falli skriðið heim.“ Vegunum um Mývatns- og Möðrudalsöræfi, Vopnafjarðarheiði og á Hófaskarði hefur verið lokað og ófært er á milli Þórshafnar og Vopnafjarðar. Snjóþekja eða hálka er á flestum öðrum leiðum á Norðausturlandi og gætu þær lokast með skömmum fyrirvara. Á Austurlandi eru vegirnir um Fjarðarheiði og Fagradal, sem og frá Djúpavogi að Höfn lokaðir. Ófært er um Vatnsskarð eystra, Öxi og Breiðdalsheiði. Fleiri vegir geta lokast með skömmum fyrirvara á Austurlandi. Á Suðausturlandi er varað við miklu sandfoki og hvassviðri austan við Jökulsárlón auk þess sem mjög hvasst er milli Kirkjubæjarklausturs og Skaftafells. Á Suðausturlandi gætu vegir líka lokast með skömmum fyrirvara. Rúnar Snær Reynisson fréttamaður sagði í hádeginu að aðeins væri farið að hvessa á Egilsstöðum eftir dúnalogn í morgun. Þar hafði snjó kyngt niður. „Menn höfðu áhyggjur af því að hann myndi allur þyrlast upp og þá myndi varla sjást á milli húsa. Sem betur fer blotaði nú í þetta hér í morgun, hitinn fór yfir frostmark, og þá situr snjórinn betur.“