Ákærður fyrir ítrekaðar nauðganir og frelsissviptingar

Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann fyrir að nauðga konu fimm sinnum á þremur mánuðum síðsumars og haustið 2022. Samkvæmt ákæru svipti maðurinn konuna frelsi sínu í þrjú þessara skipta. Í ákærunni segir að maðurinn hafi komið í veg fyrir að konan kæmist út úr íbúð frá kvöldi dags fram á næsta morgun í ágúst og nauðgað henni. Hann er ákærður fyrir að nauðga konunni aftur rúmum hálfum mánuði síðar. Samkvæmt ákæru svipti maðurinn konuna frelsi á ný undir lok september það ár og nauðgaði henni eftir að hafa fyrr sama dag lamið hana með keðju og strekkt band um háls hennar. Maðurinn er ákærður fyrir enn eina nauðgunina og frelsissviptinguna í október og að auki fyrir að hafa neytt konuna til munnmaka í bíl á ferð næsta dag. Héraðssaksóknari krefst þess að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Konan fer fram á þrjár milljónir króna í miskabætur.