Texas Town er að sögn Axels O klassísk og vönduð sveitatónlist þar sem sögur af fólki, landslagi og honum sjálfum eru í brennidepli. Axel fluttist ungur til Bandaríkjanna og bjó í Texas árum saman. Platan dregur upp mynd af þessum tíma, minningum og reynslu hans af staðháttum og fólki. Upptökur fóru fram í Rosewood Studios í Tyler í Texas með framleiðandanum Milo Deering sem spilar einnig á fjölda hljóðfæra ásamt úrvalsliði tónlistarmanna. Hljóðblöndun og hljóðjöfnun var í höndum Jóhanns Ásmundssonar úr Mezzoforte í Stúdíó Paradís á Íslandi. Auk Axels eiga þær Amy Barnett og Kris Rogge Fisher lög og texta á plötunni, en þær eru báðar virtir lagahöfundar í Texas. Texas Town er plata vikunnar á Rás 2. Axel O mætti í hljóðstofu til Atla Más Steinarssonar.