Gular viðvaranir vegna hríðarveðurs á austanverðu landinu tóku gildi í morgun og í hádeginu tóku appelsínugular viðvaranir gildi á Austurlandi og Austfjörðum vegna stórhríðar. Á Austurlandi að Glettingi er spáð norðvestan stórhríð, 20 til 28 metrum á sekúndu, snjókomu og skafrenningi. Ekkert ferðaveður verður á þessum slóðum og hætta er á foktjóni. Flutningabíll í vanda á Hófaskarðsleið Björgunarsveitir á austanverðu landinu hafa farið í nokkur útköll það sem af er degi. Björgunarsveitin Hafliði á Þórshöfn var kölluð út vegna flutningabíls sem var í vanda á Hófaskarðsleið, sunnan við Melrakkasléttu. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir bílinn hafa verið losaðan úr þeirri festu sem hann var í og hafi ökumaður haldið áfram. Komu heilbrigðisstarfsfólki til og frá vinnu Þá voru björgunarsveitir á Vopnafirði og Eskifirði einnig kallaðar út. Á Vopnafirði til að koma heilbrigðisstarfsfólki til og frá vinnu og á Eskifirði til að veita íbúum almenna aðstoð. „Það má gera ráð fyrir að það verði svolítið sagan núna á Austurlandi, að það verði ófærð innan bæjar,“ segir Jón Þór í samtali við fréttastofu.