Forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu segir hafa verið viðbúið að tæknilegir örðugleikar gætu komið upp í rafrænu prófakerfi fyrir grunnskólanema sem opnað var í morgun. Bilunin hafi sem betur fer ekki haft áhrif á marga skóla. Hægagangur í rafrænu prófakerfi Nemendur í fjórða, sjötta og níunda bekk þreyta samræmd próf á rafrænu formi í þessum mánuði, í fyrsta sinn frá 2021. Tæknilegir örðugleikar komu upp í fyrirlagningu prófanna í morgun og vörðu til hádegis. Þórdís Jóna Sigurðardóttir er forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu. „Það kom upp smá hægagangur í prófakerfinu í upphafi fyrirlagnar í morgun, þegar fyrstu skólarnir fóru inn í kerfið. En við greindum þetta auðvitað fljótt og vel hvað það var sem olli þessu og málið hefur nú verið leyst og kerfið er komið í eðlilegt horf.“ Í lok dags hafi nokkrir skólar þegar lagt prófin fyrir nemendur og allt gengið að óskum. Þórdís segist ekki vita af hverju bilunin stafaði. „En allavegana vorum við viðbúin því að það gætu komið upp byrjunarörðugleikar. Þannig að við vorum með teymið viðbúið. Þannig að þetta var leyst hratt og farsællega.“ Hafði ekki mikil áhrif Prófað er í lesskilningi og stærðfræði og verða prófin lögð fyrir frá deginum í dag til tuttugasta og sjöunda mars. Um fimmtán þúsund nemendur koma til með að taka prófin, en nákvæm tímasetning er undir hverjum grunnskóla komin. Þórdís segir bilunina í morgun ekki koma að sök. „Það er nú kannski fegurðin við það að hafa þennan fjögurra vikna glugga til að taka prófin, að það skiptir ekki öllu hvort prófið er tekið í dag eða á næstu fjórum vikum,“ segir Þórdís. „Þannig að eðlilega viljum við að þetta gangi fyrir sig, þegar kennari er búinn að gera áætlun um það að prófið sé tekið á ákveðnum tíma. Og sem betur fer hafði þetta ekki áhrif á marga skóla.“