Viðhaldsmeðferð við ópíóíðafíkn gæti farið fram í apótekum

Viðhaldsmeðferð við ópíóíðafíkn á Vogi er ekki í samræmi við lágþröskuldaþjónustu að mati Rótarinnar og Matthildar, samtaka sem sérhæfa sig í skaðaminnkun. Fólk þurfi að koma sér á Vog, á Stórhöfða í Reykjavík, sem reynist mörgum erfitt, og greiða síðan komugjald fyrir læknisviðtal til að fá lyfið. Dæmi séu um að fólk hætti í meðferðinni vegna þessara þröskulda. „Það er algjörlega galið að það sé verið að senda fólk með leigubíl til að fara þegar það eru aðrar lausnir. Við höfum talað um þetta sem er að gerast í Noregi og er búið að eiga sér stað í aldarfjórðung, þar sem viðhaldsmeðferðin á sér stað í apótekum,“ segir Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir, formaður Lyfjafræðingafélags Íslands. Kona sem hefur þegið lyfið í fjögur ár sagði í fréttum RÚV í gær að hún hefði ekki getað sótt meðferðina ef hún hefði þurft að borga fyrir hana og það væri gott að geta fengið lyfið á fleiri stöðum en á Vogi. Sigurbjörg Sæunn stingur upp á samstarfi lyfjafræðinga við Vog, skjólstæðingar myndu koma í apótek og þiggja lyfið undir eftirliti lyfjafræðings sem yrði í virku samtali um gang meðferðarinnar við Vog. „Þetta er ekki þannig að apótekin sé að taka verkefnið af meðferðastofnuninni heldur er þetta samstarf til að auka aðgengi að meðferð,“ segir Sigurborg Sæunn. „Því hefur sýnt sig að það verður að vera lágur þröskuldur fyrir því að fólk fái þessa meðferð, því annars nýtir fólk sér hana ekki,“ bætir hún við. Fjallað var um þessa lausn í hvítbók sem var gefin út fyrir tveimur árum. Heilbrigðisráðherra hafði ekki tök á að veita fréttastofu viðtal í dag. „Vandamálið er ekki að einstaklingar viti ekki af þessu, ég held það sé meira hvernig þetta yrði útfært sem er kannski spurningin, eða hvort það yrði áhugi fyrir þessu.“ Formaður Lyfjafræðingafélagsins segir að viðhaldsmeðferð við ópíóíðafíkn gæti farið fram í apótekum undir eftirliti lyfjafræðings. Gagnrýnt hefur verið að hún sé ekki nógu aðgengileg á Vogi.