Sverja af sér sam­særis­kenningar um klónaðan Carrey

Skipuleggjendur César-kvikmyndahátíðarinnar, sem haldin er ár hvert í París, hafa slegið á sögusagnir um að Jim Carrey, stórleikari og heiðursverðlaunahafi hátíðarinnar, hafi ekki verið viðstaddur hana. Samsæriskenningar um að leikarinn hafi fengið eftirhermu til að mæta í hans stað á hátíðina hafa dreifst um netheima síðustu daga.