Framboðslisti Sjálfstæðisfélagsins í Ölfusi fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor hefur verið samþykktur. Grétar Ingi Erlendsson, formaður bæjarráðs og sölu- og markaðsfulltrúi leiðir listann. Í 2. sæti er Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir, bæjarfulltrúi, bóndi og viðskiptafræðingur. Gestur Þór Kristjánsson, forseti bæjarstjórnar og húsasmíðameistari, er í 3. sæti hans. „Við ætlum að leiða Ölfus inn í næsta vaxtarskeið með áherslu á velferð þeirra sem hér búa. Það gerum við með ábyrgri fjármálastjórn, markvissri uppbyggingu innviða og skýrri forgangsröðun í þágu íbúa,“ er haft eftir Grétari Inga Erlendssyni í fréttatilkynningu. Í henni segir að með einróma samþykki listans í kvöld sé lagður sterkur grunnur að öflugri kosningabaráttu þar sem framtíðarsýn, reynsla og ábyrgð fari saman.