Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur þegið boð í árlegan kvöldverð Samtaka blaðamanna Hvíta hússins 26. apríl. Þetta er í fyrsta sinn sem hann þiggur boðið sem forseti. Í færslu á samfélagsmiðlinum Truth Social greinir hann frá því að hann hafi þegið boðið og „muni sjá til þess að þetta verði STÆRSTI, FLOTTASTI, and EINN STÓRKOSTLEGASTI KVÖLDVERÐUR ALLRA KVÖLDVERÐA, NOKKURN TÍMANN.“ Forsetinn hefur reglulega ásakað fjölmiðla um að dreifa falsfréttum. Ríkisstjórn Trumps hefur einnig beitt ýmsum takmörkunum á fjölmiðla, til að mynda takmörkuðu aðgengi fréttastofa sem hafa komist í ónáð hjá honum. Hvíta húsið velur hvaða fréttamenn eru í hópi fjölmiðlamanna Hvíta hússins og hafa aðganga að forsetanum. Samtök blaðamanna Hvíta hússins voru stofnuð 1914 og héldu sinn fyrsta kvöldverð árið 1921. Kvöldverðurinn er einn helsti fjáröflunarviðburður samtakanna sem nýtir fjármagnið í stuðning við félaga samtakanna, viðburði og fræðslustarf, auk námsstyrkja til ungra blaðamanna.