Að minnsta kosti 39 almennir borgarar hafa verið drepnir í Afganistan, síðan átök milli Pakistan og Afganistan hófust á landamærum landanna á fimmtudaginn, samkvæmt talibanastjórinni í Afganistan. Pakistanski herinn gerði loftárásir á borgirnar Kabúl og Kandahar á föstudaginn, og árásir hafa haldið áfram um helgina á nokkrar borgir og á landamærum landanna. Þrjú börn voru drepin í árás pakistanska hersins í Kunar héraði í gær. Þá hefur verið greint frá sprengingum og skothríðum í Kabúl í nótt. Átökin nú eru þau verstu síðan í október, þegar 140 manns voru drepin í átökum landanna. Landamærin á milli landanna hafa að mestu verið lokuð síðan. Hingað til hafa árásir milli ríkjanna að mestu hverfst um landamærin og í tilfelli Pakistana, beinst gegn hryðjuverkahópum sem þeir saka Talibana um að hýsa. Hryðjuverkasamtök pakistanskra talibana, Tehreek-e-Taliban Pakistan, eða TTP, hafa lengi verið með starfsemi við landamæri ríkjanna tveggja. Pakistanski varnarmálaráðherrann Khawaja M. Asif lýsti yfir stríði á hendur talibanastjórninni í Afganistan á föstudaginn vegna ítrekaðra árása undanfarna mánuði. Hann sagði þolinmæðina á þrotum og sagði að nú væri opið stríð á milli Pakistan og talibanastjórnarinnar.